Bensínstöðvarræningi réðst inn á heimili við Kambsveg og særði húsráðanda Kristín Ólafsdóttir skrifar 30. apríl 2019 09:01 Maðurinn kom við á bensínstöð Orkunnar við Kleppsveg og rændi þar peningum áður en hann réðst inn í íbúðarhúsið. Vísir/Kolbeinn Tumi
Karlmaður í annarlegu ástandi rændi bensínstöð og réðst svo inn í nærliggjandi íbúðarhús í Langholtshverfi í Reykjavík um kvöldmatarleytið í gær. Húsráðandi særðist töluvert í átökum við manninn en lögregla handtók þann síðarnefnda eftir að hafa yfirbugað hann með piparúða. Guðmundur Páll Jónsson, lögreglufulltrúi hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, staðfestir í samtali við Vísi að maðurinn hafi verið handtekinn. Fyrst hafi hann rænt peningum á bensínstöð Orkunnar við Kleppsveg og hlaupið þaðan inn í íbúðarhús við Kambsveg um sjöleytið. Til átaka kom milli heimilisföðurins og mannsins og særðist sá fyrrnefndi töluvert í andliti. Þá hafi maðurinn náð í hníf, sem hann náði þó aldrei að beita, og hótað húsráðanda. Maðurinn hafi svo hlaupið út úr húsinu og í flasið á lögreglumönnum. Þeir hafi yfirbugað manninn með piparúða og handtekið hann. Heimilisfaðirinn var fluttur á slysadeild eftir átökin við manninn en er ekki alvarlega særður. Áfallateymi Rauða krossins var kallað út á vettvang í gær en Guðmundur segir að fólkið sem statt var á bensínstöðinni, svo og heimilismenn að Kambsvegi sem urðu vitni að því þegar ráðist var á heimilisföðurinn, hafi verið í miklu áfalli. Maðurinn gisti fangageymslu lögreglu í nótt. Að sögn Guðmundar hefur ekki verið tekin ákvörðun um það hvort farið verði fram á gæsluvarðhald yfir honum en það verði skoðað í dag.
Lögreglumál Reykjavík Mest lesið Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Erlent Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Innlent „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Innlent Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Innlent Suðaustan stormur og gul viðvörun Veður Á annað hundrað sektaðir Innlent Vill nýjan Úkraínuforseta Erlent Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Innlent Fleiri fréttir Uppbyggilegra samtal en í athugasemdum „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Mótmæla sjókvíaeldi í tveimur landshlutum „Ég hef áhyggjur af Alþýðusambandinu“ Spenna fyrir þingi ASÍ og framlög til sjóvarna ekki næg Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Sjá meira