Innlent

Mætti á stöðina og borgaði hraða­sektina með klinki

Atli Ísleifsson skrifar
Myntin vó mörg kíló.
Myntin vó mörg kíló.
Ökumaður, sem staðinn hafði verið að hraðakstri, mætti nýverið á lögreglustöð á höfuðborgarsvæðinu og borgaði sektina með smámynt.

Lögreglan segir frá þessu á facebook-síðu sinni þar sem birt er stutt myndband af peningunum sem komið var með í bláum IKEA-poka.

„Nú á dögum kjósa flestir að nota heimabankann þegar greiðslur reikninga eru annars vegar og þannig spara sér tíma sem annars færi í útréttingar. Þetta er þó ekki algilt, en á dögunum kom á lögreglustöð ökumaður sem hafði verið staðinn að hraðakstri. Sá vildi gera hreint fyrir sínum dyrum og borga sektina umbúðalaust. Hann var með reiðufé meðferðis og mikið af því.

Hraðasektir eru þó sjaldnast borgaðar með brosi á vör og það getur jafnvel verið þungt hljóðið í fólki þegar það kemur þessara erinda á lögreglustöð. Töluverð þyngsli áttu líka við í þessu tilviki, en samt í annarri merkingu orðanna því að smámyntin, sem maðurinn bar í hús og var notuð til að borga sektina, vó mörg kíló,“ segir í færslunni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×