Þurftu að yfirbuga farþega Icelandair sem var í annarlegu ástandi Birgir Olgeirsson skrifar 2. apríl 2019 21:55 Flugvél Icelandair á Keflavíkurflugvelli í síðustu viku. Vísir/vilhelm
Áhöfn farþegaþotu Icelandair á leið til Newark-flugvallar í Bandaríkjunum þurfti að yfirbuga farþega sem lét ófriðlega um borð. Þetta staðfestir Ásdís Ýr Pétursdóttir, upplýsingafulltrúi Icelandair, í samtali við Vísi en fyrst var greint frá málinu á vef DV. Þotan lagði af stað frá Keflavíkurflugvelli klukkan fimm í dag en áætlað er að hún lendi á Newark-flugvelli klukkan 19 að staðartíma í Bandaríkjunum.Á vef DV er haft eftir farþega um borð að áhöfninni hefði tekist að yfirbuga manninn og hann væri nú handjárnaður og bundinn í sæti sínu. Fullyrti farþeginn að maðurinn hefði áreitt konur, bæði farþega og flugfreyjur, og tryllst yfir því að ekki væri pizza á boðstólum. Sömuleiðis á hann að hafa hótað að opna neyðarútgang sem hann sat hjá. Ásdís Ýr staðfestir í samtali við Vísi að farþegi í annarlegu ástandi hefði verið yfirbugaður af áhöfn flugvélarinnar. Segir Ásdís áhöfnina hafa góða stjórn á aðstæðum og hefur verið óskað eftir aðstoð lögreglunnar á Newark-flugvelli þegar þangað verður komið. Hún gat að öðru leyti ekki tjáð sig frekar um málið.
Bandaríkin Fréttir af flugi Icelandair Mest lesið „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Innlent Musk setti Úkraínumönnum takmörk á tengingar við Starlink Innlent Óhugnanlega margir að leysa vandamálin með töflum Innlent „Ég er ekkert að ýja að því, ég er bara að segja það fullum fetum“ Innlent Segir lögreglumenn á Vestfjörðum áhyggjufulla Innlent Bæjarstjóri Ölfuss segir múslima „valda skaða“ Innlent Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Erlent „Það er sitthvað til í því sem hann er að segja“ Innlent Ræddu ofbeldi í skólum í borgarstjórn: Segir kennara vera í legghlífum í vinnunni Innlent Brikk lokað í óákveðinn tíma Innlent Fleiri fréttir „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Segir lögreglumenn á Vestfjörðum áhyggjufulla Musk setti Úkraínumönnum takmörk á tengingar við Starlink Óhugnanlega margir að leysa vandamálin með töflum „Ég er ekkert að ýja að því, ég er bara að segja það fullum fetum“ Ræddu ofbeldi í skólum í borgarstjórn: Segir kennara vera í legghlífum í vinnunni Sigurvin kallaður út vegna Hildar Ekki tilraun til manndráps að taka sambýliskonuna kverkataki Dæmdir morðingjar gætu fengið að annast fatlað fólk „Það er sitthvað til í því sem hann er að segja“ Sakar Ölmu um að hafna Litla spítalanum fyrir fram Skandall að menn afpláni ekki í fangelsi vegna plássleysis Stefna á að hefja leit í nóvember Vilja 125 milljónir til að halda flugeldasölunni gangandi Bein útsending: Fyrsta skóflustunga að Stóra-Hrauni Dómurinn feli í sér tilmæli til þingsins Hnuplaði úr verslunum fyrir á fjórðu milljón króna Komi ekki til greina að hætta við talnakvarðann Kallað eftir rannsóknum vegna geðrofslyfs og áskorun til ráðherra Bæjarstjóri Ölfuss segir múslima „valda skaða“ Endurmeta fyrirkomulag RS-bólusetninga næstu árin Beit mann í geirvörtuna og réðst á systur hans Tekur sæti Maríu sem er í fríi í Víetnam Geðrofslyf leysa hefðbundin svefnlyf af hólmi Brikk lokað í óákveðinn tíma Skakkur á rafskútu 20,4 milljarðar til Úkraínu og aukinn stuðningur við Palestínu Vill prófa sjálfkeyrandi bíla í Eyjum Sveitarfélagi ekki skylt að smala ágangsfé úr skógræktarlandi Eldur kom upp í verslun í Hafnarfirði Sjá meira