Lágspennufall Þórarinn Þórarinsson skrifar 4. apríl 2019 09:00 Lupita Nyong'o kemst í hann krappann þegar hún mætir illum tvífara sínum.
Us Leikstjórn: Jordan Peele Aðalhlutverk: Lupita Nyong’o, Winston Duke , Shahadi Wright Joseph, Evan Alex Hálf heimsbyggðin og jafnvel gott betur virðist ekki geta haldið vatni yfir hryllingsmyndinni Us, sem má teljast undarlegt þar sem slík er hún heldur bragðdauf og lítt spennandi. Huggulegt sumarleyfi ósköp venjulegrar kjarnafjölskyldu snýst snarlega upp í martröð þegar illir tvífarar fjölskyldumeðlimanna banka upp á með illt eitt í huga. Jordan Peele grautar hér saman mörgum helstu yrkisefnum hryllingsmyndanna, sundrung kjarnafjölskyldunnar, tvífaraminninu og ýmsu öðru og vísar, oft skemmtilega, í klassískan hrylling. Myndin fer feikivel af stað og ekki verður af leikstjóranum tekið að hann nær oft upp býsna drungalegri stemningu með tónlist, útpældu myndmáli og fimleikum með tökuvélina. Stóri gallinn er bara hversu losaralegt þetta allt saman er og grunnsagan er í raun veik og að manni læðist sá grunur að öll athyglin og hrifningin séu í raun eftirskjálftar frá síðustu mynd hans, þeirri stórgóðu Get Out. Síðan eru vitaskuld ótal túlkunarmöguleikar í boði og hægt að lesa alls konar hyldjúpa samfélagsgagnrýni út úr þessu. Þá vitaskuld margt sem er ákaflega brýnt í Bandaríkjum Trumps. Þessar pælingar enda því miður líka úti í móa vegna ómarkviss hálfkáks. Us er full af frábæru hráefni en úrvinnslan er ekki betri en svo að hún verður fljótt langdregin og það sem verra er, leiðinleg.Niðurstaða: Spennusnauð og hryllingslaus hryllingsmynd sem þvælist stefnulaust í ýmsar áhugaverðar áttir og verður ekki, þrátt fyrir góða viðleitni, neitt sérstaklega hvöss samfélagsádeila.
Birtist í Fréttablaðinu Bíó og sjónvarp Menning Mest lesið Stjörnulífið: Í fyrsta skipti í bikiníi í útlöndum Lífið Heldur sig til hlés og lifir skírlífi Lífið 50+: Svefnherbergisskilnaður Áskorun Tekur árásum á samfélagsmiðlum fagnandi Lífið Vala Matt kom heljarinnar búslóð fyrir í sextíu fermetra íbúð Lífið „Ég byrjaði að lesa kaflann og fór bara að gráta“ Lífið Skúli Jón og Jennifer gengin í hnapphelduna Lífið Krakkatía vikunnar: Tollering, Sims og Einar Áskell Lífið Lady Gaga orðin mamma Lífið Presturinn sem hataði kristinfræði Lífið Fleiri fréttir Hroðvirknislegt hljóð og klisjur setja strik í reikninginn Vel heppnuð þögn, misheppnaður Mahler Kulnaður Köngulóarmaður skýtur klístruðum púðurskotum Sjá meira