LaMarcus Aldridge var óstöðvandi í liði San Antonio Spurs sem fór létt með Boston Celtics á heimavelli þeirra grænu í nótt. Aldridge var með 48 stig og 13 fráköst, en Spurs vann leikinn 115-96.
Eftir leikinn funduðu leikmenn Celtics lengi á bak við luktar dyr áður en þeir sinntu sínum hefðbundnu fjölmiðlaskyldum eftir leiki.
„Það er erfitt að vinna. Liðsumhverfi er erfitt,“ sagði Kyrie Irving eftir leikinn en hann skoraði 11 stig og gaf 12 stoðsendingar í leiknum.
„Þetta er ekki svo einfalt að það sé nóg að hlusta á alla aðra tala um hvað sé í gangi hjá liðinu. Það hefur enginn verið í minni stöðu áður, svo ég býst ekki við að neinn skilji það og þá getur enginn talað um það.“
48 PTS | 13 REB | 6 AST@aldridge_12 fuels the @spurs victory on the road in Boston! #GoSpursGopic.twitter.com/Hs5BY6Y4bE
— NBA (@NBA) March 25, 2019
Í New Orleans setti James Harden 28 stig þegar Houston Rockets vann 113-90 sigur á New Orleans Pelicans og tryggði sæti sitt í úrslitakeppninni. Hann spilaði hins vegar rétt um 29 mínútur í leiknum.
Rockets vann fjórtánda leikinn af síðustu sextán og eru þeir komnir upp í þriðja sæti vesturdeildarinnar.
Heimamenn komust aldrei yfir í leiknum en það vantaði stór skörð í lið þeirra. Af þeim sem spiluðu leikinn var Frank Jackson stigahæstur með 19 stig.
#Rockets@JHarden13's 28 PTS (6 3PM) propel the @HoustonRockets past NOP! pic.twitter.com/aA07wZGo9c
— NBA (@NBA) March 25, 2019
Ríkjandi meistarar í Golden State Warriors töpuðu stórt fyrir Dallas Mavericks um helgina en það var ekki upp á teningnum í nótt þegar þeir fengu Detroit Pistons í heimsókn.
Stephen Curry, sem hafði hvílt í leiknum gegn Dallas, skoraði 26 stig og Klay Thompson bættu við 24 í leik þar sem stóru nöfnin sýndu afhverju þeir taka sviðsljósið svo oft. Golden State vann leikinn 121-114.
Kevin Durant setti 14 stig og 11 stoðsendingar og Draymond Green var einnig með 14 stig.
„Það leið engum vel eftir tapið, ekki heldur okkur sem spiluðum ekki leikinn. Það sást vel á leik okkar í kvöld að við vildum svara fyrir það strax,“ sagði Curry eftir leikinn.
Golden State er í harðri baráttu við Denver Nuggets um toppsæti vesturdeildarinnar.
@StephenCurry30 (26 PTS, 5 3PM) and @KlayThompson (24 PTS, 4 3PM) combine for 50 in the @warriors win at Oracle Arena! #DubNationpic.twitter.com/rPYvybqFuD
— NBA (@NBA) March 25, 2019
Úrslit næturinnar:
New York Knicks - LA Clippers 113-124
Milwaykee Bucks - Cleveland Cavaliers 127-105
Indiana Pacers - Denver Nuggets 124-88
Toronto Raptors - Charlotte Hornets 114-115
New Orleans Pelicans - Houston Rockets 90-113
Boston Celtics - San Antonio Spurs 96-115
Golden State Warriors - Detroit Pistons 121-114
Los Angeles Lakers - Sacramento Kings 111-106