Talinn hafa reynt að koma farþegalestum af sporinu Atli Ísleifsson skrifar 27. mars 2019 12:32 Í öðru tilvikanna skemmdist rúða á Inter City Express lest. Myndin tengist fréttinni ekki beint. Getty
Lögregla í Austurríki hefur handtekið karlmann sem grunaður er um að hafa reynt í tvígang að ná farþegalestum á ferð af sporinu í Þýskalandi með því að koma hlutum fyrir á teinunum. Saksóknarar segja að maðurinn, sem er 42 ára Íraki, sé talinn vera stuðningsmaður hryðjuverkasamtakanna ISIS. Fundust ISIS-fánar og textabrot á arabísku á þeim stað þar sem reynt var að koma lestunum af sporinu. Fulltrúar þýskra og austurrískra yfirvalda yfirheyra nú manninn í Vínarborg, þar sem hann var tekinn höndum. Austurríska blaðið Kronen Zeitung segir að hinn handtekni sé fimm bara faðir sem hafi starfað í írakska hernum í fimmtán ár. Þá hafi hann fengið stöðu flóttamanns í Austurríki og þar sem hann hafi starfað hjá öryggisfyrirtæki. Saksóknarar segja að hann hafi í október á síðasta ári, í félagi við aðra, komið stálköplum fyrir á lestarteinunum milli München og Nürnberg sem varð til þess að rúða á Inter City Express lest skemmdist. Þá hafi steypuklumpum verið komið fyrir á teinunum tveimur mánuðum síðar. Enginn slasaðist þá.
Austurríki Þýskaland Mest lesið Kveiksþætti kippt út tímabundið Innlent Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi Innlent Rannsaka komu mögulegra launmorðingja hingað til lands Innlent Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Erlent Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Innlent Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Innlent Saslauskas og Sodys stálu 100 milljónum: Gucci-taska, dýrar dúnúlpur og 68 vitorðsmenn Innlent Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Innlent Hafi ekki verið í formlegri heimsókn í moskunni Innlent Fleiri fréttir Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Sjá meira