Marta María Jónasdóttir, ritstjóri Smartlands á mbl.is, hefur sett íbúðina sína í Ljósalandi til sölu. Um er að ræða raðhús á einni hæð með bílskúr.
Íbúðin er 162,6 fermetrar og var byggt árið 1972. Sex herbergi eru í íbúðinni og þar af fjögur svefnherbergi. Tvö baðherbergi eru í íbúðinni auk þvottahúss.
Eignin er vel staðsett en dægurmáladrottningin vill fá tæpar 85 milljónir fyrir hana.
Marta María er þekkt fyrir að hafa góðan smekk en á myndinni sést rúmgóð, björt og litrík stofa.Eldhúsið.Fjögur svefnherbergi eru í íbúðinni.Gengið er út á suðurverönd og í garðinn.