Telja sig vita hver var í bílnum sem fór í Ölfusá Jóhann K. Jóhannsson skrifar 25. febrúar 2019 23:42 Ummerki á vettvangi styðja það að bíll hafi farið í ána. Vísir/MHH
Staðfest er að bíll hafi farið í Ölfusá við Selfosskirkju nú í kvöld. Ummerki á vettvangi styðja framburð vitna. Þetta kemur fram í tilkynningu sem lögreglan á Suðurlandi sendir frá sér. Þá kemur fram að lögregla viti hver hafi verið á ferð og að unnið sé með aðstandendum að málinu. Björgunarsveitir, slökkvilið Brunavarna Árnessýslu, sjúkraflutningamenn og lögregla fengu tilkynningu um klukkan tíu í kvöld og var allt tiltækt lið úr allri Árnessýslu sent á vettvang auk þess sem þyrla Landhelgisgæslunnar fór austur. Í fyrstu var óljóst hvað hefði átt sér stað en þegar brak tók að berast upp úr ánni, brak eins og rúðuskafa og stuðarar færðist enn meiri þungi í leitina á svæðinu. Bátar sigldu upp og niður ána og björgunarsveitir gegnum með bökkum. Slökkviliðsmenn nota hitamyndavél við leit meðal annars úr þyrlu Landhelgisgæslunnar. Þá voru björgunarsveitir sendar frá Reykjavík með meiri búnað. Aðgerðarstjórn fundaði nú fyrir nokkrum mínútum í björgunarmiðstöðinni á Selfossi þar sem næstu skref voru ákveðin.
Árborg Lögreglumál Mest lesið Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Innlent Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Innlent Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Innlent Suðaustan stormur og gul viðvörun Veður Vill nýjan Úkraínuforseta Erlent Hútar sagðir ábyrgir fyrir árás á flugvöll Erlent Á annað hundrað sektaðir Innlent Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Innlent Fleiri fréttir Spenna fyrir þingi ASÍ og framlög til sjóvarna ekki næg Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Sjá meira