
Börn og álag
Við berum mikla ábyrgð á þessum einstaklingum og að skila þeim út í samfélagið á báðum fótum þannig að þau geti séð um sig sjálf og hugsanlega okkur eldra fólkið þegar fram í sækir. Hægt er að misstíga sig víða, maður lærir af slíku, svo lengi sem ekki er dvalið um of á sama stað heldur þroskast áfram. Það er engin töfraformúla til og hver og einn verður að feta sína braut. Því er áhugavert að fylgjast með foreldrum fullum af stolti við hvern áfanga í skólagöngu þegar allt hefur blessast. Foreldrar horfa til baka og gleðjast yfir að hafa staðist „prófið“, að koma barni á legg, sjálfstæðum einstaklingi sem nýtir sína hæfileika, líður vel og dafnar í því sem hann tekur sér fyrir hendur.
Andleg jafnt sem líkamleg heilsa er vissulega grundvallaratriði í því að vel takist til og því þurfum við sem berum ábyrgðina að tryggja að svo sé. Mikið hefur verið fjallað um mismunandi áherslur í menntamálum og það hvernig verði að koma til móts við þá sem standa höllum fæti á ýmsum sviðum, t.d. les- og skrifblinda. Opin umræða um einelti og viðbrögð við því hefur líka skilað miklu, en betur má ef duga skal. Við höfum býsna lengi hampað þeim sem duglegir eru og gengur vel, sérstaklega í bóknámi en verknám sækir á og er það af hinu góða. Við þurfum fagfólk á öllum sviðum og því betri menntun og þjálfun, því meiri ávinningur fyrir samfélagið í heild.
Á sama tíma og börnin eru í skóla þá eru mörg sem stunda íþróttir og hefur verið mikil sókn í því undanfarin ár sem er gott enda hugtakið heilbrigð sál í hraustum líkama okkur öllum vel þekkt og má hvetja til hreyfingar fyrir alla aldurshópa. Eftir því sem börnin mín eldast sé ég að bæði lengist skólatíminn, kröfurnar varðandi námið aukast og meiri tíma er varið í heimanám. Á sama tíma og slíkt gerist aukast kröfurnar í íþróttunum og bæði viðvera og fjöldi tíma á æfingum eykst og álagið þar með. Mér er ljóst sem fagmanni að á viðkvæmum tíma uppvaxtaráranna er nauðsynlegt að leggja talsvert inn fyrir seinni tíma og er ég þar að vísa í beinastyrk, þroska ónæmiskerfisins og margt fleira.
Sá sem æfir of mikið eykur hættuna á því að meiðast, fá vöðvaverki og jafnvel niðurbrot, svefntruflun og depurðareinkenni, aukna veikindatíðni og minnkaða einbeitingu. Þessu fylgir oft líkamleg og andleg þreyta sem aftur skapar vandamál í skóla og lærdómi. Mjög hefur verið fjallað um ofþjálfun í heimi læknavísinda undanfarið og er líklegt að meiri skaði en ávinningur hljótist af sé ekki gætt hófs. Samvera fjölskyldu er einnig grundvallarþáttur í þroskaferli barna, sú samvera er mismunandi en flestir ættu að temja sér þá reglu að borða saman að kvöldi geti þeir það og halda þá stund hátíðlega. Því ættu t.a.m. íþróttafélög að forðast æfingatíma á milli 18.30 og 20.00 sem ég tel ekki uppbyggilegan. Æfingar að kvöldi hafa tíðkast lengi, en ættu ekki að vera í boði fyrir yngri hópa og allra síst að vera eftir 21.30 þar sem slíkt getur ýtt undir svefntruflun og sömuleiðis dregið úr möguleikum til ástundunar heimanáms sem eykst með aldrinum. Jafnvægi er lykilatriði hér sem annars staðar!
Skoðun

Kann Jón Steindór ekki að reikna?
Hjörtur J. Guðmundsson skrifar

Lífið sem var – á Gaza
Israa Saed,Katrín Harðardóttir skrifar

Vöxtur inn á við og blönduð borgarbyggð er málið
Ásdís Hlökk Theodórsdóttir skrifar

Tilskipanafyllerí Trumps
Gunnar Hólmsteinn Ársælsson skrifar

Öfgar á Íslandi
Ágúst Ólafur Ágústsson skrifar

Borg þarf breidd, land þarf lausnir
Ásta Björg Björgvinsdóttir skrifar

Framtíð safna í síbreytilegum samfélögum
Dagrún Ósk Jónsdóttir skrifar

Rjúfum þögnina og tölum um dauðann
Ingrid Kuhlman skrifar

Fátækt á Íslandi: Áskoranir, viðkvæmir hópar og leiðir til úrbóta
Friðþjófur Helgi Karlsson skrifar

Verndum vörumerki í tónlist
Eiríkur Sigurðsson skrifar

Hann valdi sér nafnið Leó
Bjarni Karlsson skrifar

Misskilin sjálfsmynd
Finnur Thorlacius Eiríksson skrifar

Hvenær er nóg nóg?
Ása Berglind Hjálmarsdóttir skrifar

Byggðalína eða Borgarlína
Guðmundur Haukur Jakobsson skrifar

Úlfar sem forðast sól!
Jóna Guðbjörg Árnadóttir skrifar

Aldrei aftur
Halla Hrund Logadóttir skrifar

Tala ekki um lokamarkmiðið
Hjörtur J. Guðmundsson skrifar

Hver á auðlindir Íslands? – Kallar á nýja og skýra löggjöf
Einar G. Harðarson skrifar

Þétting í þágu hverra?
Sara Björg Sigurðardóttir skrifar

Flokkar sem telja almenning of vitlausan til að vita hvað sé sér fyrir bestu
Þórður Snær Júlíusson skrifar

POTS er ekki tískubylgja
Hanna Birna Valdimarsdóttir,Hugrún Vignisdóttir skrifar

Er niðurstaðan einstök? Ársreikningur Hveragerðisbæjar 2024
Friðrik Sigurbjörnsson,Eyþór H. Ólafsson skrifar

Hvað er verið að leiðrétta?
Ægir Örn Arnarson skrifar

Afsökunarbeiðni til fyrri kynslóða – og þeirra sem erfa munu landið
Arnar Þór Jónsson skrifar

75 ár af evrópskri samheldni og samvinnu
Clara Ganslandt skrifar

Sigurður Ingi í mikilli mótsögn við sjálfan sig!
Magnús Guðmundsson skrifar

Vetrarvirkjanir
Sigurður Ingi Friðleifsson skrifar