Ummælin lét Páll Óskar falla í Lestinni á Rás 1 í gær þar sem umræðuefnið var hvort rétt væri að Ísland myndi sniðganga Eurovision, söngvakeppni evrópskra sjónvarpstöðva, sem haldin verður í Tel Aviv í Ísrael í maí. Vel á þriðja tug þúsunda undirskrifta hafa safnast til stuðnings þess að RÚV afþakki þátttöku í keppninni, vegna framgöngu Ísrals í átökunum við Palestínu. Ísland mun engu að síður taka þátt.
Sjá einnig: Páll Óskar og dagskrárstjóri RÚV tókust á um Eurovision
Umræðan um sniðgöngu hefur þó ekki verið jafn mikil annars staðar í Evrópu og í Lestinni sagði Páll Óskar ástæðuna vera þá að gyðingar séu víða um Evrópu og umræðunni yrði ekki vel tekið.
„Ástæðan fyrir því að restin af Evrópu þegir þunnu hljóði er sú að gyðingar eru búnir að sauma sig inn í Evrópu á mjög lúmskan hátt á mjög löngum tíma. Það er alls ekki hip og kúl að vera „pro-Palestína“ í Bretlandi,“ sagði Páll Óskar.
Gyðingar hefðu að hans mati ekki lært af sögunni.
„Tragedían er sú að gyðingar lærðu ekki neitt af Helförinni. Í staðinn umbreyttust þeir í nákvæma afsteypu af sínum ógeðslegasta óvini.“

„Hvað áttu gyðingar að „læra“?“
Ummælin hafa vakið hörð viðbrögð, ekki síst sú síðari og hefur Páll Óskar meðal annars verið gagnrýndur fyrir að setja alla gyðinga undir sama hatt, vegna framferðis Ísraela í átökunum við Palestínu, og bent á að jafn vel þótt að mönnum blöski framganga yfirvalda í Ísrael þýði það ekki að allir gyðingar styðji Ísrael gegn Palestínu né kvitti upp á aðferðir yfirvalda og hersins í átökunum.„Hjálpar nákvæmlega ekkert að tengja svona svæsinn antísemítisma við harða afstöðu gegn viðbjóðnum sem Ísraelsríki stendur fyrir. Gagnrýninni snúið upp í algjöra andhverfu sem þjónar einmitt sjúkri orðræðu ísraelskra yfirvalda,“ skrifar Iris Edda Nowenstein á Twitter.
Úfffff vona svo að þetta hafi verið rangt haft eftir. Hjálpar nákvæmlega ekkert að tengja svona svæsinn antísemítisma við harða afstöðu gegn viðbjóðnum sem Ísraelsríki stendur fyrir. Gagnrýninni snúið upp í algjöra andhverfu sem þjónar einmitt sjúkri orðræðu ísraelskra yfirvalda. https://t.co/CUvAD1ScjXÞá velta ýmsir fyrir sér hvað nákvæmlega það hafi verið sem gyðingar hafi átt að læra af Helförinni þar sem um sex milljónir gyðinga voru myrtir á kerfisbundinn hátt af Nasistum í Þýskalandi og víðar í Seinni heimsstyrjöldinni.
— Iris Edda Nowenstein (@IrisNowenstein) February 5, 2019
„Ég hef alltaf verið mikill áðdáandi Páls Óskars sem tónlistarmanns. Ekki vissi ég þó að hann væri fullur af gyðingahatri. „Tragedían er sú að gyðingar lærðu ekki neitt af Helförinni," segir hann m.a. í þessu undarlega viðtali. Hvað áttu gyðingar að „læra“?“ skrifar Gísli Freyr Valdórsson á Twitter.
Ég hef alltaf verið mikill áðdáandi Páls Óskars sem tónlistarmanns. Ekki vissi ég þó að hann væri fullur af gyðingahatri. „Tragedían er sú að gyðingar lærðu ekki neitt af Helförinni," segir hann m.a. í þessu undarlega viðtali. Hvað áttu gyðingar að „læra"?https://t.co/DvtVSUH87X
— Gisli F. Valdorsson (@gislivaldorsson) February 5, 2019
Segir ummælin skaðlegri en 400 viðtöl við þjóðernissina í Paradísarheimt
Rithöfundurinn Eiríkur Örn Norðdahl skrifar einnig um ummæli Páls Óskars á Facebook. Þar segir hann að það sé til marks um líflegt og réttlátt samfélag að umræða fari fram um hvort rétt sé að sniðganga Eurovision, að fara í svokallað „menningarlegt viðskiptabann“ til þess að mótmæla framferði Ísraels í garð Palestínu.Umræðan sé hins vegar á villigötum þegar alhæft sé um gyðinga og segir Eiríkur Örn að orð Páls Óskars geti reynst mjög skaðleg.
„Orð Páls Óskars sem vitnað er til hér að ofan eru miklu meira normalíserandi fyrir gyðingahatur og rasisma í Evrópu en 400 white trash Gísla á Uppsölum fríksjó viðtöl í „mannlífsþætti“ Jóns Ársæls, sem allir ofönduðu yfir í gær,“ skrifar Eiríkur Örn og vitnar þar í umdeilt viðtal Jóns Ársæls Þórðarsonar við þjóðernissinnan Sigríði Bryndísi Baldvinsdóttur.

Hægt sé að berjast gegn framferði Ísraels á hernumdum svæðum Palestínumanna án þess að alhæfa um gyðinga.
„Það á að vera hægt að debatera menningarleg viðskiptabönn á Ísrael og berjast gegn mannréttindabrotum ógnarstjórnarinnar á hernumdu svæðunum án þess taka upp 80 ára gamlar klisjur, án þess að detta í þessar gildrur, án þess að kenna „Gyðingum“ um að hafa ekkert lært af helförinni. Það er nefnilega ekki tragedía að „Gyðingar“ hafi ekki lært af henni heldur að við hin skulum ekki skammast okkar, að við skulum ekki hafa lært,“ skrifar Eiríkur Örn.
Nú er ég síður en svo aðdáandi ísraelskra stjórnvalda og skil ef fólk vill sniðganga Eurovision. Þetta eru aftur á móti einstaklega ósmekkleg ummæli sem hjálpa engum. pic.twitter.com/Q0ZhEqWOBN
— Konráð S. Guðjónsson (@konradgudjons) February 5, 2019
Ég er mjög mikið á móti Eurovision þáttökunni í ár en?? Ég er ekki það mikið á móti henni að ég fer að tala um Helförina sem eitthvað sem gyðingar ættu að læra af??
— Hávær Hóra (@thvengur) February 5, 2019
Páll Óskar ekkert að fela gyðingaandúðina sína. Það þarf ekki að googla nema "anti semtism europe" til að lesa fréttir af því hvernig Evrópa er að tæmast af Gyðingum, en er ekki stjórnað af þeim, eins og Páll Óskar ýjar að. https://t.co/1qJvIGO1aU
— Agnar Tómas Möller (@atmoller) February 4, 2019
Þetta er grímulaust kynþáttahatur ef rétt er haft eftir Páli Óskari.
— Thordur Palsson (@PalssonThordur) February 4, 2019