Hámarkshraði á Hringbraut frá Ánanaustum að Sæmundargötu verður lækkaður úr 50 í 40 kílómetra á klukkustund samkvæmt einróma ákvörðun borgarstjórnar í gær.
Einnig var samþykkt í gær að lækka hámarkshraðann á sama hátt á Hofsvallagötu milli Hringbrautar og Ægisíðu, Ægisíðu, og á Nesvegi milli Kaplaskjólsvegar og Sörlaskjóls. Þá voru samþykktar úrbætur vegna öryggis gangandi og hjólandi vegfarenda á Hringbraut í Reykjavík.
Þá fól borgarstjórnin skipulags- og samgönguráði að athuga á hvaða fleiri götum sé hægt að lækka hámarkshraðann í 40 kílómetra á klukkustund.
Dregið úr hraða á Hringbrautinni

Tengdar fréttir

Samþykktu að lækka umferðarhraða á vesturhluta Hringbrautar í 40 km/klst
Samþykktu einnig að fara í fleiri úrbætur í samstarfi við Vegagerðina.