„Heimilisófriður“ axarmannsins í Reykjanesbæ flokkaður sem heimilisofbeldi Kristín Ólafsdóttir skrifar 18. september 2018 11:10 Nokkrir ökumenn sem stöðvaðir voru í gærkvöldi í nótt reyndust hafa verið sviptir áður. Vísir/Vilhelm
Maðurinn sem stórskemmdi lögreglubíl í Reykjanesbæ með öxi á laugardag hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald til föstudagsins 21. september næstkomandi, samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Suðurnesjum. „Heimilisófriðurinn“ sem getið var í fyrstu frétt af málinu er jafnframt flokkaður sem heimilisofbeldi. Greint var frá málinu á Vísi á laugardag en þar kom fram að lögreglumenn á Suðurnesjum hefðu brugðist við tilkynningu vegna heimilisófriðar í Reykjanesbæ. Þegar lögreglumenn komu á vettvang tók karlmaður á móti þeim með öxi og hóf strax að höggva á lögreglubílinn. Í svari lögreglu á Suðurnesjum við fyrirspurn Vísis vegna málsins segir að það sem gengið hafi á inni á heimili mannsins sé flokkað sem heimilisofbeldi. Ekki er unnt að greina frekar frá þeim hluta málsins að öðru leyti en að enginn slasaðist. Lögreglubíllinn sem maðurinn hjó í stórskemmdist og var óökufær í kjölfarið. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu verður gert við bifreiðina. Þá verður málið sent Héraðssaksóknara til nánari rannsóknar þar sem um var að ræða m.a. ofbeldi gegn lögreglumönnum lögreglustjórans á Suðuresjum. Áður kom fram að töluverð átök þurfti til að yfirbuga manninn á laugardag. Ekki liggur fyrir hvort ákæra verði gefin út á hendur manninum.
Lögreglumál Tengdar fréttir Stórskemmdi lögreglubíl með öxi í útkalli vegna heimilisófriðar Til töluverðra átaka kom þegar lögreglumenn reyndu að yfirbuga manninn. 15. september 2018 20:32 Mest lesið Viðvaranir á viðvaranir ofan Veður Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Innlent Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína Innlent Styður Repúblikana með tugum milljarða Erlent Þingmaðurinn hefði mögulega ekki átt að taka Íbúfen Innlent Kröfur sem einstaklingum er ómögulegt að uppfylla Innlent Segja hálfa milljón hafa tekið þátt Erlent Skuldar ekkert Innlent Fjörutíu ár fyrir morðið á Tupac Erlent Heppin móðir á Suðurlandi vann 42 milljónir Innlent Fleiri fréttir Kröfur sem einstaklingum er ómögulegt að uppfylla Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Heppin móðir á Suðurlandi vann 42 milljónir Hvetur verkalýðshreyfinguna til samstöðu Skuldar ekkert Fór úr bílnum og hljóp undan lögreglu Enn versnar spáin með nýjum viðvörunum Bandero leitar skjóls í Reykjavík Air Atlanta vinnur áhættumat vegna árása Húta Baráttan um varaforsetana: Valdabrölt eða samsæriskenningar? Salmonella greindist í kryddi Kokku Frumvarp um Ríkisútvarp gagnrýnt harðlega í samráðsgátt Stjórnarandstaðan segir „forfallavírus“ ganga meðal ráðherra Vilja borga fyrir eftirlit með au pair Pawel tekur við af Sigmari sem þingflokksformaður Þingmaðurinn hefði mögulega ekki átt að taka Íbúfen Leita ökumanns sem ók á dreng á reiðhjóli „Þá tökum við auðvitað tillit til þess og hlustum“ Mögulegar rafmagnstruflanir í stórhríðinni Lægðin hefur alla burði til að verða söguleg Viðurkennir mistök við skipan Jafnréttissjóðs Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína „Maður undirbýr sig fyrir það versta“ Synjað um heimilisuppbót vegna sameiginlegrar þvottavélar og snyrtingar Vona að ágreiningur liti ekki þing ASÍ Háskólarnir verði betur tengdir með breyttri strætóleið Lögreglan biðlar til fólks að flýta ferðum eða bíða „Ég skil hvað hún á við, en þannig virkar rekstur ekki“ Ákveðið álag sem maður sé undir án þess að fatta það Undirmönnun hjúkrunarfræðinga tengist dánartíðni sjúklinga Sjá meira
Stórskemmdi lögreglubíl með öxi í útkalli vegna heimilisófriðar Til töluverðra átaka kom þegar lögreglumenn reyndu að yfirbuga manninn. 15. september 2018 20:32