Innlent

Jónas Kristjánsson látinn

Sylvía Hall skrifar
Jónas Kristjánsson kom víða við á ferli sínum í fjölmiðlum.
Jónas Kristjánsson kom víða við á ferli sínum í fjölmiðlum. Fréttablaðið/GVA
Jónas Kristjánsson, fyrrverandi ritstjóri, lést á Hjartadeild Landsspítalans þann 29. júní. Hann var 78 ára.

Jónas var blaðamaður og ritstjóri og sinnti fjölmörgum ritstjórnarstörfum. Hann var fréttastjóri á Vísi og seinna meir ritstjóri allt til ársins 1975. Hann var einn stofnanda og ritstjóri Dagblaðsins árið 1975 og varð seinna meir ritstjóri DV í tuttugu ár, eða frá árinu 1981 til 2001.

Hann var ritstjóri Fréttablaðsins árið 2002 og útgáfustjóri Eiðfaxa ehf. á árunum 2003 til 2005. Samhliða starfi hjá Eiðfaxa var hann leiðarahöfundur DV og tók svo við ritstjórnarstólnum árið 2005 til 2006. Jónas kenndi blaðamennsku við Háskólann í Reykjavík á árunum 2006 til 2008.

Jónas var fæddur í Reykjavík 5. febrúar 1940. Hann lauk stúdentsprófi frá MR 1959 og BA prófi í sagnfræði frá HÍ 1966. Hann var formaður Blaðamannafélags Íslands og Íslandsnefndar International Press Institute. Hann skrifaði einnig fjölda bóka um hestamennsku, ferðalög og fleira.

Eiginkona hans, Kristín Halldórsdóttir, fyrrverandi alþingismaður lést 14. júlí 2016. Börn þeirra eru Kristján jarðfræðingur, Pálmi fréttamaður og sagnfræðingur, Pétur kerfisfræðingur og Halldóra flugmaður.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×