Tafir Airbus setja strik í reikninginn hjá Primera Air Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 5. júní 2018 19:17 Farþegaþota frá Primera Air. Vísir
Primera Air hefur sett áætlanir sínar um flug frá Birmingham til New York og Toronto á ís frá og með 21. júní næstkomandi. Ástæðan eru tafir á afhendingu á nýjum Airbus-flugvélum frá framleiðandanum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Primera Air þar sem fram kemur að þessi breyting muni ekki hafa áhrif á þá farþega sem eiga bóka flug fyrir 21. júní. Síðastliðið sumar tilkynnti félagið um að frá og með apríl í ár myndi félagið bjóða upp á beint flug frá Evrópu til Bandaríkjanna. Pantaði félagið átta Airbus 321 NEO flugvélar auk þess sem að tilkynnt var að félagið yrði fyrsta flugfélagið í heiminum til að taka í notkun Airbus 321LR flugvélar, langdrægar flugvélar með yfir 4.000 mílna flugþol. Í tilkynningu Primera Air segir hins vegar að tafir hafi orðið á afhendingu nýrra véla frá Airbus og því geti félagið ekki haldið sig við áætlanir um Bandaríkjaflug frá Birmingham. „Því miður gerðum við ekki ráð fyrir svo miklum töfum frá Airbus sem þýðir að við þurftum að taka þessa erfiðu ákvörðun,“ er haft eftir Andra Má Ingólfssyni, forstjóra Primera. Reiknar félagið með að hefja aftur flug til New York á næsta ári, þegar hinar nýju flugvélar eru komnar í hús.
Fréttir af flugi Mest lesið Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Viðskipti innlent Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Viðskipti innlent Hótelin fá ný nöfn Viðskipti innlent Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Viðskipti innlent Nýr og ódýrari valkostur fyrir fyrirtæki sem þurfa að losa úrgang Samstarf Barilla og Himneskt víkja fyrir breiðara pastaúrvali Neytendur Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Viðskipti innlent Högnuðust um hálfan annan milljarð Viðskipti innlent Innkalla milljónir bíla vegna innfelldra hurðahúna Viðskipti erlent Sýn+ verður líka línuleg sjónvarpsstöð Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hótelin fá ný nöfn Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Högnuðust um hálfan annan milljarð Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Sýn+ verður líka línuleg sjónvarpsstöð Hætta við kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar Reglugerðir ESB hafi „sérstaklega slæm áhrif á Ísland“ Fasteignaverð rokið upp eftir inngöngu í ESB Landsbankinn hækkar líka vexti Jón Þór fer til Samherja Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Síminn orðinn Ásar hf Icelandair kaupir helming í dreggjum Play á 83 milljónir Ekkert fékkst upp í mörg hundruð milljóna króna kröfur Ekkert nýtt að frétta af boðuðum kaupum Telur ESB-viðræður engu breyta um verðbólgu og stýrivexti Minni íbúafjölgun minnkar þörfina á nýjum íbúðum Vaxtahækkun sé röng og illa tímasett Indó hækkar vexti vegna stýrivaxtahækkunar „Þetta er sagt af mikilli virðingu“ „Bull og vitleysa“ að hækkunin bíti ekki á verðtryggð lán Bein útsending: Opinn fundur um samspil stýrivaxta og verðbólgu „Það eru engin fórnarlömb hér“ Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtahækkun Hækka stýrivexti Elfa Ýr lætur af störfum hjá Fjölmiðlanefnd Sjá meira