Yfir 40 prósent segjast óánægð með Dag Jón Hákon Halldórsson skrifar 11. apríl 2018 06:00 Dagur B. Eggertsson leiðir lista Samfylkingarinnar í Reykjavík. Vísir/Arnþór
Alls segjast 43 prósent þeirra Reykvíkinga sem afstöðu taka í nýrri könnun, sem Fréttablaðið og frettabladid.is gerðu, vera annaðhvort mjög óánægð eða frekar óánægð með störf Dags B. Eggertssonar borgarstjóra á kjörtímabilinu. Þá segjast 29 prósent vera mjög ánægð eða frekar ánægð með störf hans og 28 prósent segjast hvorki vera ánægð né óánægð. Þegar svörin eru skoðuð í heild sést að 6 prósent eru mjög ánægð með störf Dags, 19 prósent eru frekar ánægð og 25 prósent eru hvorki ánægð né óánægð. Þá eru 15 prósent frekar óánægð og 23 prósent eru mjög óánægð. Alls tóku 89 prósent afstöðu til spurningarinnar en 5 prósent sögðust óákveðin og 6 prósent neituðu að svara spurningunni. Dagur er hins vegar sá einstaklingur sem flestir nefna þegar þeir eru spurðir hvern þeir vilji sjá sem næsta borgarstjóra í Reykjavík. Þegar einungis eru skoðuð svör þeirra sem afstöðu taka sést að 45 prósent nefna Dag, 30 prósent nefna Eyþór Arnalds, 4 prósent nefna Líf Magneudóttur og 4 prósent Vigdísi Hauksdóttur.Sjá einnig: Langflestir vilja Dag í borgarstjórastólinn Það vekur hins vegar athygli að þegar þessarar spurningar er spurt og svör allra þeirra sem náðist í við framkvæmd könnunarinnar eru skoðuð segjast 42 prósent vera óákveðin og 16 prósent neita að svara spurningunni. Þá segjast 19 prósent vilja fá Dag sem borgarstjóra, 13 prósent Eyþór Arnalds, 2 prósent Vigdísi Hauksdóttur og 2 prósent Líf Magneudóttur. Vinsældir borgarstjóraefnanna eru álíka miklar og þær voru þegar Fréttablaðið mældi þær í lok febrúar. Þá sögðust 19 prósent af öllum þeim sem náðist í styðja Dag og 16 prósent Eyþór. Hringt var í 1.316 manns með lögheimili í Reykjavík þar til náðist í 800 samkvæmt lagskiptu úrtaki 9. apríl. Svarhlutfallið var 60,8 prósent. Þátttakendur voru valdir með slembiúrtaki úr þjóðskrá. Svarendur skiptust jafnt eftir kyni, og hlutfallslega eftir aldri.Vill ekki „Morgunblaðsarm“ í samstarf „Í fyrsta lagi er meirihlutinn fallinn og hann verður fallinn í vor. Í öðru lagi er ljóst að breytiaflið í borginni er okkar framboð, sem mælist ekki bara stærst af hinum flokkunum heldur stærra en Samfylkingin. Þannig verður það líka í vor. Við finnum það að margir sem eru að kynna sér málin vilja breytingar þannig að við eigum eftir að sjá enn meiri sveiflur í átt til breytinga í vor,“ segir Eyþór Arnalds, oddviti Sjálfstæðisflokksins í komandi borgarstjórnarkosningum.Sjálfstæðisflokkurinn og Samfylkingin mælast stærstu flokkarnir í nýrri skoðanakönnun sem Fréttablaðið og frettabladid.is gerðu. Sjálfstæðisflokkurinn mælist með rúm 28 prósent en Samfylkingin með tæplega 27 prósent. Munurinn milli flokkanna er innan vikmarka. Sjálfstæðisflokkurinn tapar sjö prósentustigum frá síðustu könnun, sem gerð var 26. og 27. febrúar. Yrðu niðurstöður kosninga í samræmi við nýju skoðanakönnunina yrði það næstminnsta fylgi sem Sjálfstæðisflokkurinn hefði fengið í borgarstjórnarkosningum. Minnsta fylgið fékk hann árið 2014 þegar flokkurinn fékk 25,7 prósent atkvæða upp úr kössunum. „Ég á von á því að við fáum meira og er reyndar sannfærður um það,“ segir Eyþór aðspurður um það hvort honum finnist fylgið í könnuninni viðunandi. Niðurstöður könnunarinnar benda líka til þess að Samfylkingin gæti tapað nokkru fylgi frá kosningunum 2014 þegar flokkurinn fékk 31,9 prósent atkvæða. „Maður vill auðvitað alltaf sækja meira fylgi og við munum leggja okkur fram um það í aðdraganda kosninga. Stóra breytingin í þessari tilteknu könnun er sú að Sjálfstæðisflokkurinn er að missa mikið fylgi milli kannana og spurning hvort sú þróun haldi áfram,“ segir Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri og oddviti Samfylkingarinnar. Styrmir Gunnarsson, rithöfundur og fyrrverandi ritstjóri, segir á vefsíðu sinni að miðað við niðurstöður könnunarinnar gæti orðið erfitt að mynda starfhæfan meirihluta í borgarstjórn. Sú spurning vakni hvort niðurstaðan gæti orðið samstarf Samfylkingar og Sjálfstæðisflokksins.Dagur B. Eggertsson lýtur ekki hýru auga til samstarfs við Eyþór Arnalds og félaga í Sjálfstæðisflokknum.VísirDagur segir valkostina mjög skýra. „Sjálfstæðisflokkurinn býður fram Morgunblaðsarminn af eigin flokki og setur fram málefnaskrá sem horfir frekar til fortíðar en framtíðar. Mér sýnist Samfylkingin ekki eiga neitt sameiginlegt með þessum armi Sjálfstæðisflokksins.“ Ef niðurstöður kosninga yrðu samkvæmt könnuninni fengju átta flokkar kjörna fulltrúa í borgarstjórn. Sjálfstæðisflokkurinn og Samfylkingin yrðu stærst með sjö fulltrúa hvor flokkur, VG, Viðreisn og Píratar með tvo fulltrúa hver og Miðflokkurinn, Flokkur fólksins og Framsóknarflokkurinn með einn fulltrúa hver. Eftir því sem Fréttablaðið kemst næst munu fjórtán framboð stilla upp listum fyrir borgarstjórnarkosningarnar. Auk Sjálfstæðisflokksins og Samfylkingarinnar eru það Vinstri græn, Píratar, Viðreisn, Miðflokkurinn, Framsóknarflokkurinn, Flokkur fólksins, Höfuðborgarlistinn, Sósíalistaflokkurinn, Kvennaframboðið, Íslenska þjóðfylkingin, Alþýðufylkingin og Frelsisflokkurinn. Píratar og VG mælast með tæp 11 prósent hvor flokkur, Viðreisn með tæp 8 prósent, Miðflokkurinn og Flokkur fólksins með rúm 4 prósent og Framsóknarflokkurinn með 4 prósent. Sósíalistaflokkurinn mælist svo með 1,4 prósent og Kvennaframboðið með 1 prósent. Önnur framboð mælast með minna fylgi. Eva Marín Hlynsdóttir, lektor í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands, sagði í hádegisfréttum Bylgjunnar í gær að fjölgun borgarfulltrúa úr 15 í 23 gæti vafalaust skýrt, að minnsta kosti að hluta til, aukinn áhuga á framboðum til borgarstjórnar. En stemningin í samfélaginu skýri líka þennan fjölda framboða. Bendir Eva þar á þann fjölda lista sem boðnir voru fram í síðustu tvennum alþingiskosningum. Aðferðafræðin Hringt var í 1.316 manns með lögheimili í Reykjavík þar til náðist í 800 samkvæmt lagskiptu úrtaki 9. apríl. Svarhlutfallið var 60,8 prósent. Þátttakendur voru valdir með slembiúrtaki úr þjóðskrá. Svarendur skiptust jafnt eftir kyni, og hlutfallslega eftir aldri. Spurt var: Hvaða lista myndir þú kjósa ef gengið yrði til sveitarstjórnarkosninga í dag? Ef ekki fékkst svar var spurt: Hvaða flokk er líklegast að þú myndir kjósa? Ef ekki fékkst svar var spurt: Er líklegra að þú myndir kjósa Sjálfstæðisflokkinn, eða einhvern annan flokk? Alls tóku 58,2 prósent þeirra sem náðist í afstöðu til spurningarinnar. Þá voru 8,3 prósent sem sögðust ekki ætla að kjósa eða skila auðu, 11,8 prósent sögðust óákveðin og 21,7 prósent vildu ekki svara spurningunni.
Birtist í Fréttablaðinu Sveitarstjórnarkosningar Tengdar fréttir Ný könnun sýnir meirihlutann fallinn Sjálfstæðisflokkurinn og Samfylkingin í borgarstjórn eru jafn stór samkvæmt nýrri skoðanakönnun Fréttablaðsins og vefmiðilsins frettabladid.is. Framsóknarflokkurinn fengi kjörinn mann. Samfylkingin, VG og Píratar gætu ekki myndað meirihluta. 10. apríl 2018 03:45 Mest lesið Bó borinn til grafar: „Þegar kóngurinn kallar lætur maður sig ekki vanta“ Innlent „Nítján tíma ferðalag til að keppa sextíu mínútur í handbolta“ Innlent Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag Innlent Jón Pétur Zimsen biðst afsökunar á færslu sinni Innlent „Botninum hefur verið náð“ Innlent Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Innlent Boða allt að 1.400 íbúðir á lóðum ríkisins og í húsum þess Innlent Stórfelld líkamsárás og aðstoð mistúlkuð sem innbrot Innlent Krefjast aðgerða: Nemendurnir þurfi að fara um einn hættulegasta veg landsins Innlent „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Innlent Fleiri fréttir Fróaði sér úti og var gripinn með teiknað barnaníðsefni Eldgos enn líklegasta sviðsmyndin Meirihluti oddvita í glænýju hlutverki Jón Pétur Zimsen biðst afsökunar á færslu sinni Lögreglan á Austurlandi kom að handtöku fimmtíu Bó borinn til grafar: „Þegar kóngurinn kallar lætur maður sig ekki vanta“ „Botninum hefur verið náð“ Segja borgaryfirvöld hafa brugðist íbúum algjörlega Húsnæðispakki 2 kynntur og ófremdarástand hjá Herjólfi Boða allt að 1.400 íbúðir á lóðum ríkisins og í húsum þess „Nítján tíma ferðalag til að keppa sextíu mínútur í handbolta“ Bein útsending: Kynna húsnæðispakka 2 Grunar sterklega að hinn látni sé ferðamaðurinn sem leitað var að Krefjast aðgerða: Nemendurnir þurfi að fara um einn hættulegasta veg landsins Aðalmeðferð hafin í Múlaborgarmáli Bein útsending: Húsnæðismál í aðdraganda kosninga Sumarbúðir fatlaðra barna í húsi sem sé úr sér gengið Vongóður um að fundur með Apple skili árangri Hvenær slítur maður viðræðum og hvenær slítur maður þeim ekki? Stórfelld líkamsárás og aðstoð mistúlkuð sem innbrot „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag „Við verðum að fá fólk heim aftur“ „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Harmleikurinn á Edition og umdeild bifreiðarstöð Óvenjulegu tímabili að ljúka Jón Pétur segir enga feðraveldisrembu í „árþúsunda náttúruvali“ Heimilt að nota rafrænt eftirlit í nálgunarbannsmálum Sjá meira
Ný könnun sýnir meirihlutann fallinn Sjálfstæðisflokkurinn og Samfylkingin í borgarstjórn eru jafn stór samkvæmt nýrri skoðanakönnun Fréttablaðsins og vefmiðilsins frettabladid.is. Framsóknarflokkurinn fengi kjörinn mann. Samfylkingin, VG og Píratar gætu ekki myndað meirihluta. 10. apríl 2018 03:45