Sjá einnig: Fjölmiðlar greitt háar sektir vegna auglýsinga
Rúmlega 60% svarenda sögðust andvíg því að áfengisauglýsingar væru heimilaðar en þar af sögðust tæp 42% vera mjög andvíg því. Stuðningur við heimilun áfengisauglýsinga var 18%.

Viðreisnarfólk sýnir mestan stuðning
Andstaða reyndist nokkuð minni hjá körlum (52%) heldur en konum (69%) og lýstu karlar auk þess frekar stuðningi við heimilun auglýsinganna heldur en konur (9%). Lítill munur reyndist á afstöðu eftir búsetu svarenda og tekjum svarenda en andstaða jókst samfara auknu menntunarstigi þeirra.Afstaða svarenda virðist tvískipt sé horft til stjórnmálaskoðana. Stuðningsfólk Framsóknarflokks, Samfylkingar og Pírata sýndi umtalsverða andstöðu gegn heimilun áfengisauglýsinga.
Mestur var stuðningur við heimilun auglýsinganna hjá stuðningsfólki Viðreisnar og Bjartrar framtíðar.
Könnunin var framkvæmd dagana 25. janúar til 30. janúar 2018 og var heildarfjöldi svarenda 928 einstaklingar, 18 ára og eldri. Könnunina má sjá í heild hér.
