Upplýsingar um laun þingmanna og kostnaðargreiðslur til þeirra hafa nú verið birtar á vef Alþingis. Þar verður hægt að skoða hvern þingmann fyrir sig og athuga hver laun hans eru, hverjar fastar kostnaðargreiðslur til hans eru og hvað hann hefur fengið endurgreitt fyrir útlagðan kostnað.
Á vefnum eru nöfn þingmanna birt í stafrófsröð og þegar smellt er á nafn þingmanns birtast upplýsingar um hann. Þá er hægt að smella á einstaka kostnaðarþætti, til dæmis húsnæðis- og dvalarkostnað, og nálgast upplýsingar um hvað felst í þeim greiðslum.
Vefurinn er ekki að fullu frágenginn og sem stendur tekur hann einungis til fastra launagreiðslna og fastra kostnaðargreiðslna. Þó er gert ráð fyrir að í næstu viku verði hægt að opna á 2. áfanga vefsins og þá verða birtar upplýsingar um breytilegar greiðslur, til dæmis endurgreiðslur fyrir útlagðan ferðakostnað.
Einnig er hafinn undirbúningur að því að birta gögn aftur í tímann og er miðað við að upplýsingar verði birtar um tíu ár aftur í tímann. Þær upplýsingar sem verða birtar fyrst um sinn eru þó einungis frá 1. janúar 2018.
Vefinn má nálgast hér.
Launaupplýsingar þingmanna nú aðgengilegar almenningi

Tengdar fréttir

Samhljómur um að birta gögn tíu ár aftur í tímann
Samhljómur er meðal flokka á Alþingi um að birta eigi upplýsingar um þingfararkostnað minnst tíu ár aftur í tímann.

Sigmundur Davíð birtir upplýsingar um akstur sinn
Telur að hann hafi að jafnaði ekið rúmlega 21.000 kílómetra á ári vegna vinnuferða.

Akstursgreiðslur þingmanna: Þeir sem fengu hæstu greiðslurnar stíga ekki fram
Vísir sendi fyrirspurn á alla þingmenn varðandi endurgreiðslur á aksturskostnaði.

Eva Pandora sagði óvart ósatt: Fékk tæpar 1,2 milljónir endurgreiddar vegna aksturs
Eva Pandora Baldursdóttir fyrrum þingmaður Pírata í norðvesturkjördæmi var í 10. sæti listans yfir þá þingmenn sem óku mest árið 2017 en áður hafði hún sagt að hún væri ekki á topp tíu listanum.