„Þetta er stúlka sem hefur staðið sig ákaflega vel í öllu sem hún hefur gert í sínu stutta lífi,“ segir Hörður.
Hann lýsir barnabarni sínu sem algjörum ás í skóla. „Hún hefur velt upp öllum prófum. Hún fór á námskeið hjá Flugskóla Íslands í sambandi við þjálfun á þessa vél sem við notum þar sem hún tók hæsta prófið. Svo var hún send til Hollands í flughermi og hún hefur velt þessu alveg upp og staðið sig með mikilli prýði.“

„Má ekki líða fyrir að vera dóttir mömmu sinnar“
Birna Borg er dóttir Lilju Dóru Harðardóttur, sem er dóttir Harðar. Faðir Birnu er Gunnar Örn Hauksson, flugstjóri hjá Icelandair, og er bróðir hennar Haukur Gunnarsson flugmaður hjá Icelandair.„Hún er barnabarn mitt þessi stúlka, og það verður að gefa þeim séns. Hún má ekki líða fyrir að vera dóttir mömmu sinnar.“
Hörður segir Birnu Borg hafa velt því fyrir sér hvort hún ætti að leggja fyrir sig flugið eða fara að nám í verkfræði.
„Hún er svo mikill námsmaður þessi stelpa að hún sagðist ætla að taka flugið fyrst því hún gæti alltaf tekið verkfræðina seinna.“
Með ólíkindum hvað unga fólkið er frábært
Hann segir framtíðina bjarta þegar kemur að æsku landsins.„Það er svo mikið af flottu ungu fólki til maður. Það er alveg með ólíkindum. Þó það séu alltaf einhverjir til vandræða einhvers staðar, þá er unga fólkið okkar bara svo frábært yfir höfuð.“

„Það er bara gaman að þessu. Þessi stétt hefur verið svo karllæg lengi að það er allt í lagi að fá unga fólkið inn og leyfa því að spreyta sig á þessu,“ segir Hörður.
Fjórir flugmenn ráðnir
Flugfélagið Ernir var stofnað árið 1970, eða fyrir 48 árum. Hörður byrjaði á sex sæta Cessnu 185 en festi nýlega kaup á 32 sæta hraðfleygri skrúfuþotu. Hörður lýsti miklum vexti í innanlandsflugi í samtali við fréttir Stöðvar 2 fyrir skömmu en hann segir við Vísi að fjórir flugmenn hafi verið ráðnir til viðbótar.Tveir þeirra eru í þjálfun og tveir aðrir á leið í þjálfun á næstu mánuðum.