Allt í molum í Bítlabænum: „Ég myndi ekki láta sjá mig úti á götu ef ég væri leikmaður Keflavíkur“ Tómas Þór Þórðarson skrifar 14. febrúar 2018 09:00
Keflavík er í molum í Domino´s-deild karla í körfubolta en liðið tapaði fyrir langneðsta liðinu Hetti í síðustu umferð og er nú búið að tapa sjö heimaleikjum í röð. Bítlabæjarliðið er í áttunda sæti með 16 stig, tveimur stigum á undan Þór Þorlákshöfn en á erfiða leiki eftir og er hætta á því að Keflavík fari ekki í úrslitakeppnina í fyrsta sinn í sögunni. „Þessi frammistaða er bara brandari. Ég lofa þér því, að ef ég væri að spila með þessu Keflavíkurliði myndi ég ekki láta sjá mig úti á götu. Ég myndi ekki mæta í vinnu. Þetta er bara búið,“ sagði Kristinn Friðriksson, fyrrverandi leikmaður Keflavíkur og sérfræðingur í Domino´s-Körfuboltakvöldi í Framlengingu gærkvöldsins. „Það er allt í rústi þarna. Ég get ekki einu sinni byrjað á því að útskýra þetta. Ég sárvorkenni þjálfurunum að glíma við þetta því að þetta er eitthvað sem hefur aldrei gerst og ég trúi ekki að þetta muni nokkurn tíma gerast aftur í Keflavík.“ Hermann Hauksson var hjartanlega sammála Kristni. „Það er að það vanti gæði í liðið. Það er bara eitthvað í gangi sem að við náum ekki að útskýra í þessum þætti. Það er allt í molum þarna. Það hefði enginn getað veðjað á að Keflavík myndi tapa sjö heimaleikjum í röð. Það er eitthvað í gangi sem að þeir þurfa að vinna úr. Keflvíkingar eiga nú eftir að upplifa það að fara ekki í úrslitakeppnina í fyrsta skipti,“ sagði Hermann. Alla framlenginguna má sjá í spilaranum hér að ofan.
Dominos-deild karla Mest lesið Býður sig fram á móti Infantino Fótbolti Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Fótbolti Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik Handbolti Komust í þriggja stafa tölu gegn nýliðunum Körfubolti Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Körfubolti Manchester City-goðsögn hættir við að hætta Fótbolti Áföllin halda áfram að dynja á Russell Formúla 1 Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Fótbolti Tarik framlengir við Víking Íslenski boltinn Leikmaður ársins missir af landsleikjum Körfubolti Fleiri fréttir Uppgjörið: Njarðvík - Keflavík 83-79| Montrétturinn er í Njarðvík Komust í þriggja stafa tölu gegn nýliðunum Leikmaður ársins missir af landsleikjum Voru gripnir í bólinu í fyrsta leikhluta og unnu það ekki upp Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Meisturunum spáð miðjumoði: „Skil ekki hvernig þeir náðu honum aftur“ Dagskráin í dag: Tveir leikir og málin tækluð í Körfuboltakvöldi Æfði með rúgbíliði í Frakklandi á undirbúningstímabilinu Uppgjörið: Grindavík - Haukar 81-71| Grindavík sterkari á lokasprettinum KR vann erkifjendurna sannfærandi Sóttu fyrsta sigur tímabilsins á heimavelli Hefur sitt 40. tímabil: „Eins og að bera saman epli og appelsínur“ „Við þurfum að gera margt betur“ Grindavík - KR 79-106 | Yfirburðir bikarmeistaranna Álftanesi spáð sigri í Bónus-deild karla Uppgjörið: Valur - Njarðvík 77-64| Valur skellti Íslandsmeisturunum Haukar létu Fjölni bíða eftir fyrstu stigum tímabilsins Sigurganga Tindastóls í Evrópu heldur áfram Setti silfurliðið í sjötta sæti: Nýr þjálfari og þynnri hópur „Ég hef miklar áhyggjur af Valsstelpunum“ „Þurfum að bæta varnarleikinn umtalsvert“ „Baráttan góð en margt sem við þurfum að gera betur“ Grindavík hóf tímabilið á stórsigri Uppgjörið: KR - Stjarnan 94-87 | KR-ingar höfðu betur í sveiflukenndum leik Grænn Rúnar dró Grindavík Meiri pressa á sterkara KR-liði Lebron talaði hreint út Tröllvaxinn Tryggvi hóf tímabilið af krafti Tindastóll með fullt hús stiga í Evrópu eftir spennutrylli Uppgjörið: Njarðvík - Keflavík 83-78| Njarðvíkingar eru meistarar meistaranna Sjá meira