Ungmenni slösuðust á Esjunni vegna flugelda Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar 2. janúar 2018 23:00 Tilkynnt var um flugeldaslys í hlíðum Esjunnar á ellefta tímanum í kvöld. Mynd úr safni. Vísir/Vilhelm Gunnarsson
Slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning vegna flugeldaslyss í hlíðum Esjunnar á ellefta tímanum í kvöld. Sjúkrabílar voru sendir á staðinn og var Björgunarsveitin Kjölur einnig kölluð á vettvang með sexhjól. Sigurbjörn Guðmundsson varðstjóri hjá Slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu segir í samtali við Vísi að þetta hafi farið betur en á horfðist í byrjun. „Það verða einungis tveir fluttir til skoðunar. Það virðist hafa orðið flugeldaslys og þau fengið í sig glæringar og smá högg. Það er verið að flytja þá í þessum töluðu orðum. Það er enginn alvarlega slasaður. Það leit út fyrir það í upphafi en svo er ekki.“ Sigurbjörn segir að ungmennin hafi sjálf hringt í Neyðarlínuna og kallað eftir aðstoð. Ekki er vitað hvort eitthvað hafi verið búið að eiga við flugeldana áður en þeir voru sprengdir í Esjuhlíðum. „Það voru líklega fjögur sem lentu í þessu,“ segir Sigurbjörn en hafði ekki upplýsingar um það hvort fleiri ungmenni hafi verið á staðnum þegar slysið varð. Ungmennin eru nú aðstoðuð niður Esjuna og verða tvö þeirra svo flutt á Landspítalann.
Esjan Flugeldar Reykjavík Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Innlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Erlent Biskup í fangelsi fyrir brot gegn drengjum Erlent Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Erlent Fleiri fréttir Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Sjá meira