Kúrekarnir missa af úrslitakeppninni Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 25. desember 2017 12:00 Elliott sneri aftur eftir sex leikja bann en samt tapaði Dallas. Vísir/Getty
Þrjú lið bættust í gærkvöldi í hóp þeirra sem eru komin áfram í úrslitakeppni NFL-deildarinnar en flestir leikir sextándu og næstsíðustu umferðar tímabilsins fóru fram í gærkvöldi. LA Rams, Kansas City Chiefs og Carolina Panthers unnu öll sína leiki og eru þar með komin áfram í úrslitakeppnina. Dallas Cowboys er hins vegar úr leik eftir tap fyrir Seattle Seahawks. Dallas hafði unnið þrjá leiki í röð og endurheimti hlauparann Ezekiel Elliott eftir sex leikja bann fyrir leikinn í gær. Elliott stóð fyrir sínu og var með meira en 100 jarda í leiknum en að öðru leyti var sókn Dallas ekki sannfærandi. Dallas skoraði öll sín stig með vallarmörkum en leikstjórnandinn Dak Prescott kastaði boltanum tvívegis í hendur varnarmanna Seattle, þar af einu sinni á Justin Coleman sem þakkaði fyrir sig með því að skora snertimark. Russell Wilson, leikstjórnandi Seattle, hefur verið frábær á leiktíðinni en þrátt fyrir að hann hafi skorað tvö snertimörk í leiknum kláraði hann aðeins fjórtán sendingar í leiknum og komst ekki yfir 100 sendingajarda. Tapið þýðir að Dallas er úr leik en sigur Seattle þýðir að liðið á enn möguleika á að komast í úrslitakeppnina. Til þess þarf liðið að vinna Arizona Cardinals á gamlárskvöld og treysta á hagstæð úrslit í öðrum leikjumSean McVay og Todd Gurley.Vísir/GettySeattle á þó engan möguleika á að vinna sinn riðil, vesturriðil Þjóðardeildarinnar, þar sem að LA Rams tryggði sér sigur í riðlinum með sigri á Tennessee Titans, 27-23. Þetta var í fyrsta sinn síðan 2003 að Rams vann riðilinn og er mikill sigur fyrir þjálfarann Sean McVay sem tók við liðinu í janúar. McVay er aðeins 31 árs og yngsti aðalþjálfari NFL-liðs í sögu deildarinnar. McVay hélt skemmtilega ræðu í búningsklefanum eftir leik og brutust út mikil fagnaðarlæti er hann gaf leikmönnum frí til miðvikudags.There’s only one thing you can say... WOOOOOOOOO!! pic.twitter.com/r4a2qbub5w — Los Angeles Rams (@RamsNFL) December 24, 2017 Hlauparinn Todd Gurley hefur verið engum líkur síðustu vikurnar í liði Rams og sýndi í gær að hann kemur vel til greina í valinu um besta [e. MVP] leikmann deildarinnar. Gurley var með 276 jarda og tvö snertimörk í leiknum - ótrúlegar tölur.Kelvin Benjamin skoraði snertimark fyrir Buffalo sem var dæmt ógilt.Vísir/GettyNew England Patriots vann Buffalo Bills, 37-16, en leikurinn var jafnari en tölurnar gefa til kynna. Staðan að loknum fyrri hálfleik var jöfn, 13-13, eftir að dómari leiksins tók þá umdeildu ákvörðun að dæma snertimark Kelvin Benjamin, útherja Buffalo, ógilt. Buffalo jafnaði sig ekki og eftirleikurinn var auðveldur fyrir Patriots, sem tryggir sér heimavallarrétt í úrslitakeppninni með sigri í lokaumferðinni - eða ef Pittsburgh tapar fyrir Houston í kvöld. Sá leikur er í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport klukkan 21.25 í kvöld. Meðal annarra úrslita má nefna að Green Bay Packers skoraði ekki stig gegn Minnesota en liðið er án leikstjórnandans Aaron Rodgers sem var aftur settur á meiðslalista félagsins eftir að ljóst varð að liðið myndi ekki komast í úrslitakeppnina. Cleveland Browns er enn án sigurs eftir tap gegn Chicago Bears og er liðið þar með öruggt með að fá fyrsta valréttinn í nýliðavali deildarinnar næsta vor.Hér má sjá hvaða lið eru komin áfram í úrslitakeppnina og hvaða lið eiga enn möguleika á að komast í hana í lokaumferðinni á gamlárskvöld.Úrslit helgarinnar: Baltimore - Indianapolis 23-16 Green Bay - Minnesota 0-16 Cincinnati - Detroit 26-17 Kansas City - Miami 29-13 New England - Buffalo 37-16 Chicago - Cleveland 20-3 Carolina - Tampa Bay 22-19 New Orleans - Atlanta 23-13 Washington - Denver 27-11 Tennessee - LA Rams 23-27 NY Jets - LA Chargers 7-14 San Francisco - Jacksonville 44-33 Dallas - Seattle 12-21 Arizona - NY Giants 23-0
NFL Tengdar fréttir Rodgers settur aftur til hliðar hjá Packers Aaron Rodgers spilar ekki meira nú þegar Green Bay Packers á ekki möguleika á sæti í úrslitakeppninni. 20. desember 2017 18:30 Ótrúlegur endir þegar Patriots vann toppslaginn New England Patriots tryggði sér nauðsynlegan sigur á Pittsburgh Steelers í ótrúlegum leik. 18. desember 2017 08:00 Einkaþjálfari Brady settur út í kuldann af Belichick Tom Brady þakkar þjálfaranum fyrir að vera enn í fremstu röð 40 ára gamall. 20. desember 2017 11:30 Mest lesið HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Enski boltinn Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum Handbolti Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Enski boltinn Liverpool áfram eftir vítakeppni Enski boltinn Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Körfubolti „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Enski boltinn Heimir farinn frá Fylki Íslenski boltinn Fleiri fréttir Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Knattspyrnuforkólfur segir af sér til að mótmæla stuðningi við Infantino „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Liverpool áfram eftir vítakeppni Mikael Egill fór meiddur af velli í sigri á Juventus Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum Martin fagnaði á móti Tryggva eftir spennuleik Uppgjörið: Tindastóll-Valur 45-72 | Stólarnir klesstu á Valsvegg Heimir farinn frá Fylki Grindavíkurkonur áfram á sigurgöngu Daníel Tristan innsiglaði sigurinn með langþráðu marki KA-menn burstuðu FH-inga í Krikanum Enn taplausar þrátt fyrir martraðarbyrjun Töpuðu fyrir toppliðinu á tveimur sjálfsmörkum Elvar með stórleik í Evrópukeppninni Viðar Ari skaut Frey og lærisveina hans út úr bikarnum Diljá Ýr fagnaði sigri á Blikabönunum og Hammarby vann líka Elín Klara öflug í stórsigri Sävehof HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val Real Madrid biður alla Kínverja afsökunar Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Tré felld vegna Þjóðarhallar Slagur um starfið hjá Blikum og verður enginn í vörn hjá KR? Sjá meira
Rodgers settur aftur til hliðar hjá Packers Aaron Rodgers spilar ekki meira nú þegar Green Bay Packers á ekki möguleika á sæti í úrslitakeppninni. 20. desember 2017 18:30
Ótrúlegur endir þegar Patriots vann toppslaginn New England Patriots tryggði sér nauðsynlegan sigur á Pittsburgh Steelers í ótrúlegum leik. 18. desember 2017 08:00
Einkaþjálfari Brady settur út í kuldann af Belichick Tom Brady þakkar þjálfaranum fyrir að vera enn í fremstu röð 40 ára gamall. 20. desember 2017 11:30