Tólf voru fluttir alvarlega slasaðir með þyrlum Landhelgisgæslunnar (LHG) á Landspítalann. Fimm eru á gjörgæslu samkvæmt upplýsingum frá Landspítalanum og útskrifast tveir af bráðalegudeild í dag. Þrír þurfa áfram á gjörgæslumeðferð að halda. Tveir útskrifuðust frá bráðamóttöku og Landspítala strax í gægr.
Aðrir ferðamenn, 32 talsins, voru fluttir í fjöldahjálparstöð á Klaustri. Yfirmaður sjúkraflutninga Heilbrigðisstofnunar Suðurlands (HSu) segir að mikið hafi munað um að ein af þyrlum LHG hafi verið í æfingaflugi á svæðinu.
Tilkynning um slysið barst á tólfta tímanum. 44 kínverskir ferðamenn voru um borð í rútunni auk ökumanns og leiðsögumanns.
Fyrstu viðbragðsaðilar komu frá Vík í Mýrdal og Kirkjubæjarklaustri. Um leið lá umfang slyssins fyrir og ákveðið var að virkja hópslysaáætlun.

„Við tjölduðum öllu til sem hægt var að tjalda. Það vildi svo heppilega til að ein þyrla LHG var í Vestmannaeyjum og gat komið beint þaðan,“ segir Styrmir Sigurðsson, yfirmaður sjúkraflutninga HSu.
Tveir farþegar lentu undir rútunni en það tókst að ná þeim þaðan með hjálp vinnulyftu í einkaeigu frá Vík í Mýrdal. Annar þeirra var úrskurðaður látinn á slysstað. Heimildir Fréttablaðsins herma að fleiri farþegar hafi kastast út úr rútunni.

Aðrir hafi verið fluttir í fjöldahjálparstöð á Kirkjubæjarklaustri en þaðan voru tíu fluttir með þyrlu á HSu.
„Ég vil hrósa öllum sem komu að þessu. Frá vettvangi og til Reykjavíkur auk allra annarra sem að þessu komu.“

Ólafur segir að Landspítalinn sé alltaf fullnýttur og því hafi þurft að byrja á því að skapa rými fyrir þá sem fluttir voru á spítalann af slysstað.
Einhverjir sjúklingar hafi því verið fluttir á Akranes.
Slysið kom á versta tíma fyrir spítalann enda yfirleitt álagstími strax eftir jólin.
Gulu viðbragðsstigi var lýst yfir á spítalanum og fólki bent á að leita á heilsugæslustöðvar og Læknavaktina.
Viðbragðsstiginu var aflétt klukkan sex í gær.
Í hópslysaæfingum hér á landi hafa meðal annars verið æfðar aðstæður þar sem flytja þarf fólk úr landi vegna álags á stofnanir hérlendis.

„Það er svo verðmætt að vera búin að æfa viðbrögð. Við höldum reglulega æfingar og það skilar sér.“
Vill sjúkraþyrlu á Suðurland
Það sem af er ári hafa orðið minnst þrettán óhöpp hópferðabíla hér á landi. Í flestum hafa orðið engin, eða minniháttar slys, á fólki. Nokkur þeirra hafa átt sér stað í umdæmi Suðurlands.„Við höfum verið mjög uppteknir undanfarna daga. Við höfum verið með hjartað í brókinni að svona geti gerst í ljósi gríðarlegs álags stórra ökutækja á svæðinu,“ segir Styrmir.
Styrmir segir að samræmdar aðgerðaáætlanir og æfingar geri fólk betur í stakk búið til að takast á við slík áföll en helst vildu menn að aldrei þyrfti að reyna á þær. Kallað hefur verið eftir því að hálkuvarnir verði bættar fyrir austan Vík í Mýrdal og bæta vegi.
„Það að fyrsta þyrlan hafi verið í æfingaflugi virkaði í raun eins og hún væri á staðvakt. Það var gríðarlega mikilvægt. Það ýtir undir þá skoðun sem við höfum haft að það eigi alltaf að vera sjúkraþyrla tæk á staðvakt á Suðurlandi í ljósi af umferðarálagi á svæðinu,“ segir Styrmir.

Sendiherra heimsótti fjöldahjálparmiðstöð og LSH
Liu Mingming sendiherra Kína fór í kjölfar slyssins og heimsótti þá slösuðu, bæði á Landspítalanum og fjöldahjálparmiðstöðinni sem opnuð var á Kirkjubæjarklaustri. Hann fór ásamt öðrum starfsmönnum sendiráðsins til þess að fá frekari upplýsingar um tildrög slyssins og líðan þeirra slösuðu.Kínverska sendiráðið sendi frá sér tilkynningu í morgun þar sem segir að sendiráðið hafi strax komið af stað viðbragðsáætlun vegna slyssins í gær. Þá leggja þau áherslu á að málum kínversku ríkisborgaranna sem slösuðust verði fylgt náið eftir og bjóða þeim fram alla nauðsynlega aðstoð.