Arnór með fullkominn níu marka leik Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 3. október 2017 15:02 Arnór Þór Gunnarsson. Vísir/EPA
Landsliðsmaðurinn Arnór Þór Gunnarsson átti mjög flottan leik þegar lið hans Bergischer HC vann fjórtán marka heimasigur á HG Saarlouis, 33-19, í þýsku b-deildinni í handbolta. Það er frídagur í Þýskalandi í dag og því fór leikurinn fram mjög snemma á deginum. Það hentaði greinilega okkar manni mjög vel því hann klikkaði ekki á skoti í leiknum. Arnór Þór varð langmarkahæstur á vellinum með 9 mörk í 9 skotum. Hann skoraði fimm af mörkum sínum af vítapunktinum. Tvö af mörkum hans komu úr hraðaupphlaupi, tvö úr hægra horninu og eitt af línunni. Hann átti einnig eina stoðsendingu á liðsfélaga sinn. Arnór skoraði fimm mörkum meira en næstu menn í hans liðið sem voru þeir Max Darj og Leos Petrovsky með fjögur mörk hvor. Sigur Bergischer HC var mjög öruggur en þeir voru komnir átta mörkum yfir í hálfleik, 18-10, og skoruðu síðan tvö fyrstu mörk seinni hálfleiksins. Bergischer HC hefur unnið alla sjö leiki tímabilsins til þessa og er eitt með fullt hús á toppi deildarinnar. Arnór er kominn með 54 mörk í fyrstu sjö leikjunum og er einn af markahæstu mönnum þýsku b-deildarinnar.
Handbolti Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport „Hún var frábær eiginkona, mögnuð móðir sem og amma“ Fótbolti Varamaðurinn tryggði meisturunum dramatískt stig Enski boltinn „Hundrað kílómetrar að drepast úr sýkingu er bara fínt“ Sport Uppgjörið: KR - Vestri 2-2 | Guy Smit bjargaði stigi fyrir KR Íslenski boltinn Albert skoraði tvö í fyrsta leiknum fyrir Fiorentina Fótbolti Bellingham kallaði dómarann skíthæl Fótbolti Sögulegur dagur er Thelma sópaði til sín gullverðlaunum Sport Thelma Norður-Evrópumeistari í stökki Sport Uppgjörið: Keflavík - ÍR 2-3 | Keflvíkingar í úrslitaleikinn Íslenski boltinn Fleiri fréttir Hörmulegur seinni hálfleikur varð þýsku meisturunum að falli Orri skoraði þrjú er Sporting valtaði yfir Íslendingaslaginn Fínn leikur Íslendinganna í Þýskalandi dugði ekki til Þjálfarinn í byrjunarliðinu: „Mér fannst þörf á smá aga í leikinn“ Sjö mörk Jóhönnu hjálpuðu til við að landa fyrsta sigrinum Uppgjörið: Fjölnir - HK 28-27 | Flautumarkið fékk ekki að standa og Fjölnir slapp með sigur Ihor fór mikinn í stórsigri Aftureldingar Fullkomin byrjun lærisveina Arnórs heldur áfram Ólafur með fjögur mörk í fyrsta sigri Karlskrona Aðeins einn löglegur dúkur svo Valur og FH byrja saman í Krikanum Arftaki Kristjáns óvænt hættur Guðmundur miður sín eftir stórtap: „Eitt það versta sem ég hef upplifað lengi“ Elín Klara og Sara Sif sáu um Stjörnuna Slæm byrjun Vals hélt áfram í Garðabænum „Höfðum mýmörg tækifæri til að klára þennan leik miklu fyrr“ „Fyrst og fremst bara ekki nógu sáttur með mína menn“ Gísli Þorgeir bar af í Íslendingaslag kvöldsins Haukar áfram á toppnum með fullt hús stiga Fram áfram með fullt hús Bjarki Már og Orri Freyr með stórsigra í Meistaradeildinni Uppgjörið: FH - ÍBV 33-30 | Góður kafli í fyrri hálfleik skilaði sigri FH-inga Framarar flæktir í óskýrum reglum HSÍ: „Þetta er alveg galið dæmi“ Haukur komið að nítján mörkum í fyrstu tveimur leikjunum í Meistaradeildinni Selfoss átti lítið í Íslandsmeistara Vals „Stefnum á að vera í þessum efri hluta“ Uppgjörið: ÍR - ÍBV 22-22 | Heimakonur komnar á blað Haukur magnaður í sigri á Viktor Gísla og félögum Alfa Brá og Katrín Anna í landsliðið Tímabilið byrjar vel hjá Bjarka sem varð markahæstur í stórsigri Gummersbach gaf mikið eftir í seinni hálfleik Sjá meira