Logi heldur upp á afmælið sitt á Eurobasket í annað skipti

Fyrir tveimur árum féll fyrsti leikur Íslands á Eurobasket frá upphafi, leikur við Þjóðverja, einmitt á afmælisdag Loga en hann fæddist 5. september 1981. Nú spilar hann við Slóveníu á afmælisdaginn sinn.
„Þetta er svakalegt lið og lið sem gæti alveg unnið mótið. Þeir eru búnir að vera mjög flottir í þessum fyrstu þremur leikjum en við förum í leikinn alveg eins og á móti Frökkunum. Við erum hvergi bangnir,“ sagði Logi Gunnarsson í samtali við Arnar Björnsson.
„Við vorum í góðum leik í fyrri hálfleik á móti Frökkum og við vorum samt að hanga í þeim á meðan Frakkarnir voru að hitta vel. Ef við dettum á einn leik þar sem við hittum úr öllu þá getur allt gerst,“ sagði Logi. Hann ætlar að njóta þess að vera á Eurobasket þrátt fyrir mótlæti og stór töð.
„Nú er maður að sjúga í sig allt síðustu metrana á mínum landsliðsferli. Þetta er alveg þess virði og vera búinn að fá síðustu tvö mót sem gulrót eru algjör forréttindi. Það eru margir körfuboltamenn í Evrópu sem vildu vera í okkar sporum,“ sagði Logi.
„Ég er alls ekki að hætta í körfubolta en það styttist í það. Síðustu leikirnir hér en ég veit ekki alveg hvenær ég hætti með landsliðinu en það fer að líða að því. Maður er ferskur og getur hlaupið. Ég get gert eitthvað og hjálpað liðinu og þá er maður með," sagði Logi.
Tengdar fréttir

Jón Arnór: Ég er að gera miklu meira en ég hélt að ég gæti
Jón Arnór Stefánsson gat lítið verið með í lokaundirbúningi íslenska landsliðsins fyrir Evrópumótið vegna nárameiðsla.

Jón Arnór ánægður með orð Loga í klefanum
Jón Arnór Stefánsson hrósaði Loga Gunnarssyni fyrir leiðtogahæfileika sína í íslenska búningsklefanum eftir tapið á móti Póllandi á laugardaginn.

Körfuboltaprinsar Íslands, Slóveníu og Finnlands
Ísland á eftir tvo leiki á EM í Helsinki og í þeim leikjum fá Íslendingar að kynnast líklegum framtíðarstjörnum í NBA-deildinni. Fréttablaðið fékk Finn Frey Stefánsson til að segja frá þeim og bera saman við Tryggva Snæ Hlinason.

Einar Bollason: Finnur Freyr er framtíðarlandsliðsþjálfari
Körfuboltagoðsögnin Einar Bollason er að sjálfsögðu í Helsinki þar sem íslenska körfuboltalandsliðið tekur þátt á EM.

Martin: Vonandi er land og þjóð ekki búin að gefast upp á okkur
Martin Hermannsson segir að strákarnir í íslenska körfuboltalandsliðinu séu ekki búnir að gefa upp vonina að vinna leik á Evrópumótinu í Helsinki þrátt fyrir þrjú 30 stiga töp í röð.