Íslendingar máluðu stúkuna bláa á Evrópumótinu í fótbolta í Frakklandi sumarið 2016 og endurtaka leikinn á EM í körfubolta í haust. Þegar handboltalandsliðið tryggði sig inn á enn eitt Evrópumótið var ljóst að litla Ísland var enn á ný að bíta frá sér í hópi risanna.
Gullöld landsliðanna
Við Íslendingar erum án vafa að upplifa gullöld landsliðanna okkar í boltagreinunum þremur. Handboltalandsliðið hefur haldið heiðri Íslands á lofti fyrsta einn og hálfan áratug nýrrar aldar en síðustu ár hafa bæði fótbolta- og körfuboltalandsliðið bæst í hópinn.
Árið 2018 verður fimmta árið í röð þar sem Ísland á karlalandslið á Evrópumóti í einni af stóru boltagreinunum.
Ísland er á leiðinni á sitt tíunda Evrópumót í röð í handboltanum í byrjun næsta árs, á sitt annað Evrópumót í röð í körfuboltanum í næsta mánuði og enginn er búinn að gleyma því þegar karlalandsliðið í fótbolta komst alla leið í átta liða úrslitin á Evrópumótinu í Frakklandi í fyrra.

Ísland hefur enn fremur átt A-landslið á Evrópumóti í boltagreinum samfellt frá árinu 2012 og þegar handboltalandslið karla lýkur leik á Evrópumótinu í Króatíu í byrjun næsta árs þá hefur Ísland verið með tíu landslið á Evrópumótum á sjö ára tímabili.
Undanfarin tvö ár hefur Ísland átt tvö landslið á EM á ári því bæði handboltalandsliðið og fótboltalandsliðið voru með á Evrópumótunum 2016 og fyrr í sumar var fótboltalandslið kvenna með á EM í þriðja sinn í röð en nú er komið að strákunum í körfuboltalandsliðinu.
Þrjár í gegnum allar undirkeppnir
Aðeins þrjár af þessum sjö þjóðum fóru í gegnum undankeppnina á öllum þremur vígstöðvum. Íslensku landsliðin unnu alls þrettán leiki í þessum þremur undankeppnum og geta státað af því ásamt Þýskalandi og Ungverjalandi að hafa unnið sér þátttökuréttinn í gegnum undankeppnina en ekki komist á eitthvert Evrópumótanna í gegnum góðan árangur á síðasta móti eða með því að vera gestgjafi í keppninni.
Árangur íslensku landsliðanna í Laugardalnum var sérstaklega athyglisverður því liðin töpuðu engum heimaleik í undankeppnunum þremur og uppskeran var 9 sigrar og tvö jafntefli í ellefu leikjum. Körfuboltalandsliðið og handboltalandsliðið unnu alla þrjá heimaleiki sína og fótboltalandsliðið vann þá þrjá fyrstu áður en liðið gerði jafntefli í þeim tveimur síðustu.
Íslenska þjóðin er aðeins rúmlega 330 þúsund manns og það er magnað að við séum með landslið á Evrópumóti á hverju ári og stundum tvö á sama ári. Litla Ísland er ekki svo lítið þegar kemur að árangri landsliðanna okkar.