Varað við stormi á Suðausturlandi Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 15. maí 2017 07:32 Eins og sést á vindaspánni verður mjög hvasst suðaustan til í kvöld. mynd/veðurstofan
Veðurstofan varar við stormi á Suðausturlandi í kvöld og allra syðst á landinu þar sem meðalvindur gæti náð meira en 20 metrum á sekúndu. Í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofunnar segir að dagurinn byrji með austan kalda og skúrum en rólegu og þurru veðri norðanlands. Síðdegis nálgast svo lægð úr suðri og bætir í vindinn en undir kvöld verður kominn norðaustan strekkingur og þá mun væntanlega slá í staðbundinn storm syðst og suðaustan til, til dæmis á veginum við Öræfajökul. Lægðinni fylgir úrkoma og mun rigna um allt land í kvöld og nótt. Á morgun lægir og styttir upp að mestu. „Dregur næst til tíðinda í veðri á miðvikudag, þá gera spár ráð fyrir að gangi í allhvassa norðanátt. Svo virðist sem þessi norðanátt verði ekki af köldustu sort sem þýðir að úrkoman, sem einkum verður bundin við norðanvert landið, muni falla sem rigning á láglendi og það verður nóg af henni. Væntanlega gránar þó í fjöll. Ef við skyggnumst lengra inn í framtíðina, þá gengur norðanáttin niður á fimmtudag og mestar líkur eru á rólegu og úrkomulitlu veðri í vikulokin,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings en veðurhorfur næstu daga eru annars þessar:Austan 5-13 m/s og skúrir, en hægari og þurrt norðanlands. Vaxandi norðaustanátt þegar kemur fram á daginn, 8-15 undir kvöld, en 15-23 á Suðausturlandi og syðst á landinu. Rigning um allt land í kvöld og nótt. Hiti 7 til 15 stig, hlýjast fyrir norðan. Lægir á morgun og styttir upp að mestu.Á þriðjudag:Minnkandi vindur og rigning. Breytileg átt 3-10 síðdegis, skýjað á köflum og smáskúrir, einkum við ströndina. Hiti 7 til 15 stig, hlýjast í innsveitum.Á miðvikudag:Norðan 10-18 m/s og talverð rigning á norðanverðu landinu. Hægari vindur og úrkomuminna sunnantil. Hiti 2 til 11 stig, mildast syðst.Á fimmtudag:Minnkandi norðanátt og rigning, en bjartviðri á Suðurlandi. Hiti breytist lítið.Á föstudag, laugardag og sunnudag:Breytileg átt, yfirleitt hægur vindur. Skýjað með köflum og úrkomulítið á landinu. Fremur milt í veðri.
Veður Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Kristrún tilbúin í aðgerðir Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Fleiri fréttir Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Sjá meira