Ferðin hans Ívars smátt og smátt að breytast í eina bestu skíðaferð allra tíma

Ferðin hans Ívars er hinsvegar smátt og smátt að breytast í eina bestu skíðaferð alla tíma því liðin hans Ívars hafa öll farið á kostum síðan að hann kom endurnærður heim uppfullur af fjallaloftinu úr Ölpunum.
Ívar hafði ákveðið fyrir tímabilið að fara í umrædda skíðaferð og tímasetningin var valin þegar liðið mætti lélegasta liði deildarinnar. Haukarnir stefndu á toppbaráttu eins og árið áður en það bjóst enginn á Ásvöllum við að liðið væri á þessum tíma að berjast fyrir lífi sínu í deildinni.
Haukarnir voru hinsvegar í bullandi fallbaráttu þegar kom að leiknum og höfðu tapað þremur leikjum í röð. Það mátti því ekkert klikka á móti Snæfelli en þá var þjálfarinn floginn út.
Fjarvera Ívars virtist hinsvegar vera það sem Haukaliðið þurfti til að reka af sér slyðruorðið. Haukarnir unnu þetta öruggan 102-83 sigur á Snæfelli og fögnuðu með því að spila „Á skíðum skemmti ég mér“ í leikslok.
Ívar stýrði liðinu síðan til sigurs á Stjörnunni og Tindastól í fyrstu tveimur leikjunum eftir að hann kom heim. Stjarnan endaði tímabilið í öðru sæti og Tindastóll í því þriðja þannig að Haukarnir sýndu í þessum tveimur leikjum hvað liðið gat verið gott.
Ívar var hinsvegar ekki hættur þótt að Haukarnir hafi ekki komist í úrslitakeppni Domino´s deildarinnar því við tóku úrslit yngri flokkanna þar sem hann þjálfaði bæði drengjaflokk og unglingaflokk hjá Haukum.
Ívar stýrði báðum liðum inn í undanúrslitin um Íslandsmeistaratitilinn og á síðustu tveimur helgum hefur hann síðan gert bæði liðin að Íslandsmeisturum.
Unglingaflokkur Hauka vann Íslandsmeistaratitilinn á Flúðum um helgina og drengjaflokkurinn hafði viku áður tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn í Grafarvogi.
Síðan að Ívar kom heim úr skíðaferðinni hafa liðin hans hjá Haukum unnið 14 af 18 leikjum, bjargað sér örugglega frá falli og unnið tvo Íslandsmeistaratitla.
Ívar fékk líka endurráðningu eftir tímabilið og framtíðin ætti að vera mjög björt hjá Haukum með Íslandsmeistaraleikmenn í tveimur elstu karlaflokkunum.
Hér fyrir neðan má sjá sigurgöngu Ívars Ásgrímssonar og liða hans eftir að hann kom heim úr skíðaferðinni.
Tímabilið er ekki alveg búið hjá Ívari því framundan eru leikir íslenska kvennalandsliðsins á Smáþjóðaleikunum. Það verður fróðlegt að sjá hvort að hann haldi sigurgöngu sinni áfram þar.
Ívar Ásgrímsson eftir skíðaferðina umdeildu
Meistaraflokkur karla 100%
2 leikir - 2 sigrar
Björguðu sér frá falli
Unglingaflokkur karla 100%
7 leikir - 7 sigrar
Unnu 7 síðustu leikina
Íslandsmeistarar
Drengjaflokkur karla 56%
9 leikir - 5 sigrar
Unnu 4 síðustu leikina
Íslandsmeistarar
Samanlagt 78%
18 leikir - 14 sigrar
2 Íslandsmeistaratitlar
Tengdar fréttir

Formaður knd. Hauka: Ágætt að Ívar fari frá núna í smá tíma
Mál málanna í íslenska körfuboltaheiminum í dag er skíðaferð þjálfara Hauka, Ívars Ásgrímssonar. Hann mun ekki stýra sínu liði í gríðarlega mikilvægum leik gegn Snæfelli á föstudag vegna ferðarinnar.

Ívar: Hefði verið rekinn ef Snæfells-leikurinn hefði tapast
Það var þungu fargi létt af Ívari Ásgrímssyni, þjálfara Hauka, eftir sigurinn á Stjörnunni í kvöld. Sæti í deildinni tryggt og það eftir umdeilda skíðaferð hans.

Ívar áfram með Hauka | Ætla að styrkja liðið og berjast um titla
Ívar Ásgrímsson verður áfram við stjórnvölinn hjá karlaliði Hauka í körfubolta.

Brynjar Þór um skíðaferðina: Galin ákvörðun og mikil vanvirðing við Snæfell
Fleirum þykir skíðaferð Ívars Ásgrímssonar, þjálfara Hauka, óvirðing við næsta mótherja sem er Snæfell.

Ingi Þór um skíðaferð Ívars: „Strákunum finnst þetta óvirðing við sig“
Ingi Þór Steinþórsson, þjálfari Snæfells, er ekki kátur með að þjálfari Hauka hafi pantað sér skíðaferð þegar liðin eiga að mætast.

Ívar: Bara hlegið og öskrað í Körfuboltakvöldi
Ívar Ásgrímsson, þjálfari Hauka, reyndi að halda uppi vörnum fyrir sjálfan sig í gær eftir skíðaferðina frægu sem hann fór í er Haukar spiluðu mikilvægasta leik tímabilsins fyrir síðustu helgi.

Körfuboltakvöld: Er þetta ekki orðið ágætt hjá Ívari?
Dominos Körfuboltakvöld var á dagskrá Stöðvar 2 Sport í gærkvöldi og þar var rætt um málefni Ívars Ásgrímssonar, þjálfara Hauka.

Fjarvera Ívars getur hjálpað til
Kjartan Freyr Ásmundsson, formaður körfuknattleiksdeildar Hauka, segir að þó svo hann hefði viljað hafa þjálfarann sinn, Ívar Ásgrímsson, á landinu þá geti það verið ágætt fyrir liðið að vera án þjálfarans um tíma.

Ingi Þór: Skandall að Haukar séu að berjast við fall
Þjálfari Snæfells segir að það sé skandall að Haukar séu að berjast fyrir lífi sínu.

Finnur Atli: Landið er á móti Haukum
Finnur Atli Magnússon, leikmaður Hauka, sér jákvæðar hliðar við alla umfjöllunina um Haukana og skíðaferð þjálfarans, Ívars Ásgrimssonar.