Sögðu formanni Neytendasamtakanna upp Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 19. maí 2017 19:56 Ólafur Arnarson formaður Neytendasamtakanna.
Stjórn Neytendasamtakanna hefur sagt upp ráðningarsamningi við Ólaf Arnarson, formann samtakanna sem starfaði jafnframt sem framkvæmdastjóri þeirra. Frá þessu var greint í kvöldfréttum RÚV en fyrr í dag bárust fregnir af því að stjórnin hefði lýst yfir vantrausti á Ólaf þann 6. maí síðastliðinn. Nokkrar vikur eru síðan ráðningarsamningnum við Ólaf var sagt upp og segist hann í samtali við Vísi ætla að vinna þriggja mánaða uppsagnarfrestinn. Þá hyggst hann sitja áfram sem formaður Neytendasamtakanna en hann var kosinn til formennsku á þingi þeirra í október síðastliðnum. Næsta þing verður haustið 2018. Í yfirlýsingu meirihluta stjórnar Neytendasamtakann, sem Stefán Hrafn Jónsson stjórnarmaður sendir fyrir hönd hans, segir að ástæður vantrausts séu fyrst og fremst þær „að að ráðningarsamningur formanns var ekki borinn undir stjórn og að skuldbindingar varðandi rekstur bifreiðar voru einnig án vitundar og samþykkis stjórnar. Þar sem fjárhagsstaða Neytendasamtakanna er viðkvæm treysti meirihlutinn sér ekki til að samþykkja slík vinnubrögð.“ Segir í yfirlýsingunni að stjórnin vinni nú að því leiðrétta þessar skuldbindingar sem hún segir Ólaf hafa stofnað til en hann vísar því á bug að hann hafi verið að skuldbinda samtökin án vitundar stjórnar. Hann segir væringar í gangi í stjórninni sem hann líti svo á að sé ekki lokið og telur óheppilegt að einhverjir stjórnarmenn hafi ákveðið að fara með málið í fjölmiðla. „Það er síðan bara mál sem þarf að skoða hvernig Neytendasamtökunum verður best þjónað þegar formaðurinn er ekki í fullu starfi. Ég tel að það geti orðið erfitt og ekki í þágu samtakanna,“ segir Ólafur. Yfirlýsingu Neytendasamtakanna má sjá í heild sinni hér að neðan:Í ljósi fréttaflutnings í dag vilja stjórnamenn Neytendasamtakanna koma eftirfarandi á framfæri:Á síðasta stjórnarfundi samtakanna þann 6. maí 2017 samþykkti meirihluti stjórnarinnar vantrauststillögu á formann Neytendasamtakanna, Ólaf Arnarson. Búið er að segja ráðningarsamning Ólafs upp.Ástæður vantrausts eru fyrst og fremst sú að ráðningarsamningur formanns var ekki borinn undir stjórn og að skuldbindingar varðandi rekstur bifreiðar voru einnig án vitundar og samþykkis stjórnar. Þar sem fjárhagsstaða Neytendasamtakanna er viðkvæm treysti meirihlutinn sér ekki til að samþykkja slík vinnubrögð.Ólafur Arnarson er góður talsmaður neytenda í fjölmiðlum en hann er ekki einráður í Neytendasamtökunum og starfar þar ásamt stjórn í að efla stöðu samtakanna. Fjárhagsstaða samtakanna leyfði ekki þær skuldbindingar sem Ólafur stofnaði til og er verið að vinna í að leiðrétta þær. Stjórn samtakanna vinnur að því að styrkja stöðu samtakanna enn frekar og koma í veg fyrir að samtökin þurfi að draga saman seglin og geti áfram þjónustað neytendur með sem bestum hætti.Fyrir hönd meirihluta stjórnar NeytendasamtakannaStefán Hrafn Jónsson
Tengdar fréttir Lýsa yfir vantrausti á formann Neytendasamtakanna Stjórnin samþykkti vantraustsyfirlýsinguna á síðasta stjórnarfundi. Ólafur ætlar ekki að láta það hafa áhrif á störf sín. 19. maí 2017 14:12 Mest lesið Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Erlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Fleiri fréttir Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Sjá meira
Lýsa yfir vantrausti á formann Neytendasamtakanna Stjórnin samþykkti vantraustsyfirlýsinguna á síðasta stjórnarfundi. Ólafur ætlar ekki að láta það hafa áhrif á störf sín. 19. maí 2017 14:12