Körfubolti

Systir aðalstjörnu Boston lést í bílslysi

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Thomas hefur aldrei leikið betur en í vetur.
Thomas hefur aldrei leikið betur en í vetur. vísir/getty
Chyna Thomas, systir Isiah Thomas leikmanns Boston Celtics í NBA-deildinni í körfubolta, lést í bílslysi í Washington í gærmorgun.

Chyna Thomas var 22 ára gömul þegar hún lést. Hún var ein í bílnum.

Bróðir hennar fékk þessar skelfilegu fréttir eftir æfingu Boston-liðsins í gær.

Boston mætir Chicago Bulls í fyrsta leik sínum í úrslitakeppninni í kvöld og samkvæmt heimildum ESPN ætlar Thomas að spila leikinn.

Thomas átti sitt besta tímabil á ferlinum í vetur. Hann var með 28,9 stig og 5,8 stoðsendingar að meðaltali í leik og átti hvað stærstan þátt í því að Boston endaði í efsta sæti Austurdeildarinnar.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×