Skaginn hlýtur Útflutningsverðlaun forseta Íslands Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 19. apríl 2017 15:00 Guðni Th. Jóhannesson forseti afhenti Ingólfi Árnasyni, framkvæmdastjóra Skaginn 3X, verðlaunin fyrir árangursríkt starf að útflutningi á íslenskum vörum og þjónustu á erlendum markaði. Róbert Róbertsson
Útflutningsverðlaun forseta Íslands voru veitt við hátíðlega athöfn á Bessastöðum klukkan 14:30 í dag. Verðlaunin að þessu sinni hlýtur íslenska tækni- og framleiðslufyrirtækið Skaginn en þetta er í 29. skiptið sem Útflutningsverðlaunin eru veitt. Þá var frú Vigdísi Finnbogadóttur, fyrrverandi forseta Íslands, veitt sérstök heiðursviðurkenning fyrir að hafa með starfi sínu borið hróður Íslands víða um heim og stuðlað þannig að jákvæðu umtali um land og þjóð. Í tilkynningu segir um Skagann, fyrirtækið sem hýtur Útflutningsverðlaunin í ár: „Skaginn hf. fær verðlaunin fyrir að hafa náð afar athyglisverðum árangri í að þróa, framleiða og selja tækjabúnað fyrir matvælaiðnaðinn, einkum fiskvinnsluna. Fyrirtækið er í fremstu röð þeirra íslensku fyrirtækja sem hafa náð að brjóta sér leið inn á alþjóðlegan matvælamarkað með framleiðsluvörur sem í upphafi eru þróaðar í nánu samstarfi við íslensk framleiðslufyrirtæki. Sérstaða Skagans hf. er fólgin í byltingarkenndum tækninýjungum hvað varðar íslausa kælingu á matvælum, sjálfvirkni og lausnum við pökkun og flutning á afurðunum.“ Sögu fyrirtækisins má rekja aftur til ársins 1985 og hefur það selt vörur sínar víða um heim. Í dag er Skaginn rekinn í þremur einingum, það er sem Skaginn hf., Þorgeir og Ellert hf. og 3X Technology á Ísafirði Velta Skagans á síðasta ári var um 4,4 milljarðar króna og heildarvelt systurfyrirtækjanna þriggja sex milljarðar. Starfsmenn eru í heildina um 180 talsins. Eins og áður segir var Vigdísi Finnbogadóttur svo veitt sérstök heiðursviðurkenning en um hana segir í tilkynningu: „Vigdís var, eins og kunnugt, fyrsta konan í heiminum sem kosin var í lýðræðislegum kosningum til að gegna hlutverki þjóðhöfðingja og bar þar sigurorð af þremur körlum. Hún var fjórði forseti Íslands og gegndi embættinu í 16 ár - frá árunum 1980 til 1996. Sigur Vigdísar í forsetakosningunum varpaði kastljósi alheimsins á hana og á Ísland í leiðinni. Í ræðu sinni um Vigdísi hafði Sigsteinn Grétarsson, formaður úthlutunarnefndar m.a. á orði: „Við Íslendingar spegluðum okkur í þeirri mynd sem Vigdís dró upp af landi okkar og þjóð. Hún minnti okkur á að það er lán að vera fæddur hér á landi, hún minnti okkur á mikilvægi þess að standa vörð um íslenska tungu og kunna skil á sögu þjóðarinnar og menningu. Og ekki hvað síst minnti hún okkur á að konur og karlar eru jafnokar á öllum sviðum.““ Í dómnefnd vegna verðlaunanna sátu að þessu sinni Sigsteinn Grétarsson, stjórnarformaður Íslandsstofu, Björgólfur Jóhannsson frá Viðskiptaráði, Runólfur Smári Steinþórsson frá Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands, Þórunn Sveinbjörnsdóttir frá Alþýðusambandi Íslands og Örnólfur Thorsson frá embætti forseta Íslands. Íslandsstofa er bakhjarl Útflutningsverðlaunanna.
Mest lesið Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent Fleiri fréttir Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Sjá meira