Annað barn greint með mislinga Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 31. mars 2017 13:49 Barnið er óbólusett vegna ungs aldurs. vísir/getty
Annað barn hefur verið greint með mislinga hér á landi en um er að ræða tvíburasystkini barnsins sem greindist með sjúkdóminn fyrir tíu dögum. Það er því ekki um óvæntan atburð að ræða segir í frétt á vef Landlæknis. Börnin eru 10 mánaða gömul og eru því óbólusett vegna ungs aldurs. Þetta er í fyrsta skipti í um það bil aldarfjórðung sem mislingasmit hefur orðið á Íslandi. Að því er fram kemur á vef landlæknis heilsast barninu vel og er í einangrun heima. Fleiri hafa ekki greinst með sjúkdóminn og má telja dvínandi líkur á fleiri tilfellum á næstunni. Mislingar geta reynst hættulegir óbólusettum ungum börnum Allt að 95 prósent barna hér á landi eru bólusett gegn mislingum, rauðum hundum og hettusótt, sem er eitt hæsta hlutfall bólusettra barna í Evrópu. Því er talið ólíklegt að mislingar nái útbreiðslu eða valdi stórum faröldrum hér á landi, en síðasti faraldurinn á Íslandi var árið 1977. Mislingar geta reynst hættulegir einkum óbólusettum ungum börnum og ónæmisbældum einstaklingum. Tilhögun bólusetninga er um þessar mundir með þeim hætti að börn eru bólusett fyrst við 18 mánaða aldur og síðan endurbólusett 12 ára. Síðast greindust mislingar hér á landi í barni árið 2014 og í fullorðnum einstaklingi í fyrra. Þessir einstaklingar, sem smituðust utan landsteinanna, smituðu ekki út frá sér eftir komu til landsins. Mislingaveiran er mjög smitandi og berst milli manna með úða frá öndunarfærum (t.d. hósta og hnerra). Veiran getur lifað og valdið smiti í allt að tvær klukkustundir eftir að hún berst út í andrúmsloftið. Einkenni mislinga byrja að koma fram um 10–12 dögum eftir smit og geta verið mismikil eftir einstaklingum. Þau byrja oftast með flensulíkum einkennum, þ.e. hita, nefrennsli, sviða í augum, hósta, bólgnum eitlum og höfuðverk. Á þriðja eða fjórða degi veikindanna koma í flestum tilfellum fram útbrot sem ná yfir allan líkamann og standa í 3–4 daga eða þar til sjúkdómurinn fer að réna. Mislingaveiran getur stundum valdið alvarlegum sjúkdómi og leitt til eyrna- eða lungnabólgu, kviðverkja, uppkasta, niðurgangs og heilabólgu. Mislingar eru mest smitandi dagana áður en útbrotin koma fram en eftir það dregur úr smitlíkum næstu fjóra dagana.
Mislingar Heilbrigðismál Mest lesið Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent Hútar sagðir ábyrgir fyrir árás á flugvöll Erlent Vill nýjan Úkraínuforseta Erlent Útskrifuð af sjúkrahúsi og send aftur í fangelsið Erlent Á annað hundrað sektaðir Innlent Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Innlent Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Erlent Lést eftir árás tígrisdýrs í dýragarði Erlent Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Innlent Fleiri fréttir Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Sjá meira