Þessi örlög liðsins koma þjálfaranum, Inga Þór Steinþórssyni, ekkert sérstaklega á óvart. Það gekk illa hjá Snæfelli að styrkja liðið fyrir tímabilið og í kjölfarið var ákveðið að horfa til framtíðar.
„Við töluðum ekkert um þetta inni í klefa eftir leik í gær. Við erum að horfa til lengri tíma. Við erum ekki veruleikafirrtir og gerðum okkur grein fyrir að þetta yrði niðurstaðan. Ég gerði mér hreinlega ekki einu sinni grein fyrir að við værum fallnir fyrr en ég las það á Vísi,“ segir Ingi Þór enda ekkert að velta sér upp úr hvenær hið óumflýjanlega yrði formlegt.
„Stjórn, þjálfarar og leikmenn eru meðvitaðir um að við erum að horfa til framtíðar. Byggja upp kjarna sem getur borið þetta lið uppi næstu árin.“
Þótt það sé vissulega sárt fyrir leikmenn liðsins að tapa öllum leikjum í efstu deild þá telur þjálfarinn að þetta muni hjálpa liðinu til lengri tíma.

„Ég tel okkur samt hafa gert þokkalega úr því sem við erum með og strákarnir staðið sig bara vel. Það er skrýtið að hrósa mönnum sem eru alltaf að tapa en það er ekkert auðvelt að halda haus og hætta aldrei. Við göngum ekki um göturnar með hausinn í malbikinu. Þetta er enginn dauðadómur. Þetta er upphaf að einhverju nýju.“
Ingi Þór reyndi svo sannarlega að styrkja liðið fyrir tímabilið með reyndari mönnum en fékk ansi margar neitarnir. Af hverju vildu leikmenn ekki koma í Hólminn?
„Það var áhugi hjá mörgum sem ég talaði við en menn voru að bera fyrir sig nám eða treystu sér ekki í fjarnám. Það eru kærusturnar sem vilja ekki fara og svo er það félagslífið á suðvesturhorninu. Svo er það fjarlægðin sem er samt engin,“ segir þjálfarinn og bætir við að 4+1 reglan hjálpi ekki félagi eins og Snæfelli.
„Hún gerir það að verkum að íslensku strákarnir fara fram á peninga sem eru ekki til. Þá fellur það um sjálft sig. Flott hjá þeim félögum sem geta greitt þessi laun.“
Ingi Þór vill sjá ákveðnar breytingar hjá KKÍ og er augljóslega ekki hrifinn af 4+1 reglunni. „Það er tvennt sem hreyfingin þarf að gera. Annaðhvort opnum við fyrir erlenda leikmenn og þéttum aðeins gæðin eða fækkum liðum. Við eigum ekki íslenska leikmenn. Það er mjög jákvætt að eiga alla þessa erlendu leikmenn í háskóla og atvinnumennsku en það þynnir gæðin í deildinni. Það eru til ungir strákar en þeir eru ekki endilega tilbúnir líkamlega í átök með fullorðnum mönnum. Ég vona að hreyfingin skoði þetta í vor. 4+1 reglan hefur sína kosti en hún hefur líka sína galla,“ segir Ingi en hann stefnir á að koma liðinu aftur upp á næstu tveim til þrem árum.
Aðeins fimm lið hafa verið lengur í deildinni
Snæfell hefur spilað í úrvalsdeildinni undanfarin fjórtán tímabil og aðeins fimm lið í deildinni hafa verið lengur í deildinni. Liðin sem hafa verið lengur eru Njarðvík, KR, Keflavík, Grindavík og ÍR.
Snæfell féll síðast úr deildinni vorið 2000 og það tók liðið þá tvö tímabil að vinna sér aftur sæti í úrvalsdeildinni sem tókst vorið 2002.
Þegar liðið féll vorið 1995 voru Hólmarar aftur á móti þrjú tímabil að endurheimta sæti sitt meðal þeirra bestu. Áður höfðu liðið fjórtán ár frá veru liðsins í deild þeirra bestu (1976-1990).
Tími liðsins í 1. deildinni er því alltaf að styttast og haldi þessi þróun áfram verða Snæfellingar aðeins eitt tímabil í 1. deildinni að þessu sinni.
Lið sem hafa verið lengur í efstu deild en Snæfell
KR frá 1961
Njarðvík frá 1972
Keflavík frá 1985
Grindavík frá 1987
ÍR frá 2000
Lið sem hafa verið skemur í efstu deild en Snæfell
Stjarnan frá 2007
Þór Þorl. frá 2011
Haukar frá 2013
Tindastóll frá 2014
Þór Ak. frá 2016
Skallagrímur frá 2016
Snæfell hefur þrisvar áður fallið úr efstu deild í körfuboltanum
1975-76
Tímabil utan efstu deildar: 14
Aftur í úrvalsdeild: 1990-91
1994-1995
Tímabil utan efstu deildar: 3
Aftur í úrvalsdeild: 1998-99
1999-2000
Tímabil utan efstu deildar: 2
Aftur í úrvalsdeild: 2002-03
2016-2017
Tímabil utan efstu deildar: ?