Sendiherra Breta gagnvart ESB hættir óvænt Atli Ísleifsson skrifar 3. janúar 2017 14:05 Útgönguferlið á að taka tvö ár en margir efast um að sá tímarammi haldi. Vísir/Getty
Ivan Rogers, sendiherra Bretlands gagnvart Evrópusambandinu, hefur óvænt tilkynnt að hann hætti störfum. Financial Times greinir frá þessu. Theresa May, forsætisráðherra Bretlands, hefur áður greint frá því að breska ríkisstjórnin muni hefja formlega Brexit-ferlið með því að virkja 50. grein Lissabon-sáttmálans fyrir marslok, en búist var við að Rogers myndi gegna lykilhlutverki í þeim samningaviðræðum sem framundan eru. Rogers á að hafa greint samstarfsfólki sínu frá þessu í morgun og hafi tilkynningin komið sem þruma úr heiðskíru lofti. Hann á ekki að hafa greint frá sérstakri ástæðu afsagnarinnar, en reynt að draga úr áhrifum afsagnarinnar þar sem skipunartími hans renni hvort eð er út í nóvember á þessu ári. Rogers vakti nýlega athygli þegar hann sagði að það gæti tekið tíu ár fyrir Breta og ESB að ná saman um samning um viðskiptatengsl þeirra eftir útgöngu Breta. Útgönguferlið á að taka tvö ár en margir efast um að sá tímarammi haldi.
Brexit Mest lesið Lést í sprengingunni Innlent Skekkja hækki iðgjöld og kosti samfélagið milljarða Innlent Fríhöfnin gjörsamlega galtóm Innlent Dapurlegt að fylgjast með hægriflokkum sem sameinast á jaðrinum Innlent Viðvaranir að falla úr gildi en meira óveður í nánd Veður Íhugar að draga úr hernaði í Íran Erlent Skammt stórra högga á milli Veður Vilja að lögreglan finni þann sem skrifaði færsluna Innlent Afsalar sér verðlaunum fyrir Sykurbað Innlent Sleppt úr haldi eftir hópárásina á Höfðatorgi Innlent Fleiri fréttir Íhugar að draga úr hernaði í Íran Stöðvuðu annað meint skuggafley Rússa á Miðjarðarhafi Einn helsti samstarfsmaður Berlusconi látinn Stjórnvöld sögð skoða hernám eða umsátur um Kharg-eyju Formaður systurflokks Sjálfstæðisflokksins vill Noreg í ESB Mette-Marit í einkaviðtali við NRK: „Að sjálfsögðu óska ég þess að hafa aldrei hitt hann“ Orbán stendur í vegi fyrir lánveitingunni til Úkraínu Segir Írani ekki lengur geta auðgað úran Bandarískur stjúpsonur El Mencho fékk krúnuna Hittler mætir Zielenski í frönskum bæjarstjóraslag Útskrifuð fyrir fimm mánuðum en neitar að fara Vilja 25 billjónir: „Það þarf peninga til að drepa vonda kalla“ Tilbúnir til að sprengja flugbrautir á Grænlandi Farage í klandri vegna myndbanda fyrir nýnasista og öfgamenn Banksy opinberaður, enn einu sinni Fjárframlög til BBC World Service aukin vegna upplýsingaóreiðu Black Cube sakað um njósnir fyrir kosningar í Slóveníu Viðvörun gefin út á Bretlandseyjum vegna heilahimnubólgu Trump hótar umfangsmiklum árásum á olíuinnviði Íran Olíuvinnslur rýmdar eftir árásir á eitt stærsta gassvæði heims Reyna að rjúfa hljóðmúrinn án láta Sænskur ríkisborgari tekinn af lífi í Íran Säpo varar við aukinni ógn frá Rússlandi Krefjast rúmlega sjö ára fangelsis yfir glæpaprinsinum Felldu enn einn ráðherrann: Reyna að ryðja leiðina fyrir Írani en gætu eflt herinn Tillögu um lögleiðingu dánaraðstoðar hafnað í Skotlandi Skárri staða í Álasundi Hóta hefndum fyrir drápið á Larijani Skógareldur ógnar byggð í Álasundi Staðfesta andlát Larijani og Soleimani Sjá meira