Ólögleg sigurkarfa Grindavíkur skellti Stjörnunni í bikarnum | Myndband Tómas Þór Þórðarson skrifar 7. nóvember 2016 12:15
Grindavík vann Stjörnuna, 86-82, í 32 liða úrslitum Maltbikars karla í körfubolta sem voru nokkuð óvænt úrslit enda Garðbæingar á toppnum í Domino's-deildinni með fullt hús stiga eftir fimm umferðir. Dramatíkin var mikil í Röstinni í Grindavík því Lewis Clinch skoraði þriggja stiga körfu af löngu færi þegar nokkrar sekúndur voru eftir og kom heimamönnum í 85-82. Það var í raun sigurkarfa leiksins en hún hefði ekki átt að standa. Ólafur Ólafsson gerði frábærlega í að stela boltanum eftir mislukkaða sendingu Tómasar Heiðars Tómassonar en Ólafur steig út af vellinum þegar hann gaf boltann á Clinch og fékk skráða stoðsendingu. Þar átti Stjarnan að fá boltann aftur og fá annað tækifæri til að skora sigurkörfuna. Hrafn Kristjánsson, þjálfari Stjörnunnar, sá þegar Ólafur steig út af og mótmælti harkalega við dómarana. Það skilaði honum bara tæknivillu og vítaskoti fyrir Grindavík sem Ólafur sjálfur tók, skoraði úr og kláraði leikinn endanlega, 86-82. Atvikið má sjá hér að ofan
Íslenski körfuboltinn Mest lesið Rúmlega helmingur hlaupara þurfti að hætta Sport Elísa meðal tíu efstu á EM í utanvegahlaupum Sport Gamlir draugar sóttu að Arnari í Japan Fótbolti Stórsigur hjá Belgum undir stjórn Elísabetar Fótbolti Fór á spítala og HM gæti verið í hættu Fótbolti Írarnir hans Heimis skemmdu kveðjupartý Kanada Fótbolti Borinn grátandi af velli viku fyrir HM Fótbolti Byrjaði mótið með enga styrktaraðila og áhyggjur af hótelkostnaði Sport Aron Einar heim í Þorpið? Íslenski boltinn Mistök Wembanyama leiddu til annars sigurs Knicks Sport Fleiri fréttir Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Eftirspurnin sprengir skalann: Ódýrasti miðinn kostar hátt í milljón Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Sjá meira