Angelina Jolie fær börnin en Pitt fær að heimsækja

Ástæðan fyrir skilnaðnum mun hafa verið mismunandi sjónarmið parsins á barnauppeldi, en einnig hafa fjölmiðlar ytra greint frá því að Brad Pitt hafi beitt börnunum líkamlegu ofbeldi.
Jolie fór fram á fullt forræði yfir börnunum þeirra sex en nú greinir Entertainment Weekly frá því að þau hafi náð samkomulagi um skilnaðinn og forræði yfir börnunum. Þetta staðfestir talsmaður Angelina Jolie við miðilinn.
„Við getum staðfest að þau hafa náð samkomulagi um skilnaðinn og að Jolie fái forræði yfir börnunum sex. Pitt fær reglulega að hitta börnin,“ segir talsmaður leikkonunnar.
Ekki hefur þetta fengist staðfest frá talsmönnum Brad Pitt.
Jolie segir í skilnaðarpappírunum að þau hafi skilið þann 15. september. Þau giftu sig í ágúst 2014 og er með sanni hægt að segja að þetta sé eitt allra frægasta par heims í dag. Brad Pitt er 52 ára en Angelina Jolie er 41 árs.
Jolie-Pitt börnin eru sex talsins og heita; Maddox Chivan (15 ára), Pax Thien (12 ára), Zahara Marley (11 ára), Shiloh Nouvel (10 ára) og tvíburarnir Knox Leon (8 ára) og Vivienne Marcheline (8 ára).
Tengdar fréttir

Brad Pitt fer fram á sameiginlegt forræði
Þetta kemur fram í skilnaðargögnum sem Pitt lagði inn til dómara á föstudag. Angelina Jolie fer fram á fullt forræði yfir sex börnum þeirra.

Adele tileinkaði heila tónleika Pitt og Jolie: „Fékk sjokk þegar ég sá fréttirnar“
Leikkonan Angelina Jolie sótti um skilnað frá Brad Pitt á mánudaginn og rötuðu fréttirnar í heimsmiðlana í gær. Þau hafa verið saman síðan árið 2004 en giftu sig árið 2014.

Jennifer Aniston skellihlær á forsíðu New York Post
Leikkonan Angelina Jolie sótti um skilnað frá Brad Pitt á mánudaginn og rötuðu fréttirnar í heimsmiðlana í gær. Þau hafa verið saman síðan árið 2004 en giftu sig árið 2014.

Faðir Jolie: „Það hefur eitthvað mjög alvarlegt gerst fyrst hún tekur svona ákvörðun“
Leikkonan Angelina Jolie sótti um skilnað frá Brad Pitt á mánudaginn og rötuðu fréttirnar í heimsmiðlana í gær.

Angelina Jolie sækir um skilnað frá Brad Pitt
Leikkonan Angelina Jolie hefur sótt um skilnað en hún er gift leikaranum Brad Pitt og hafa þau verið saman síðan árið 2004.

Brad Pitt sakaður um að misþyrma börnunum: Öskraði og veittist að þeim í einkaþotu
Leikarinn Brad Pitt er sakaður um að hafa misþyrmt börnunum sínum með því að hafa öskrað ítrekað á þau og einnig beitt líkamlegu ofbeldi.

Marion Cotillard tjáir sig um skilnaðinn: „Þetta verða mín fyrstu og einu viðbrögð“
Franska leikkonan hafnar öllum ásökunum um framhjáhald.

Lögfræðingurinn Laura Wasser er leynivopn Angelinu Jolie
Til að fá sínu framgengt hefur Angelina Jolie sóst eftir þjónustu eins frægasta skilnaðarlögfræðingsins í Hollywood, Lauru Wasser.

Brad Pitt tjáir sig um skilnaðinn við Angelinu Jolie
Brad Pitt hefur nú tjáð sig um skilnað sinn og Angelinu Jolie en fréttir af skilnaðinum bárust í dag og hafa vakið mikla athygli enda voru hjónin eitt skærasta stjörnuparið.

Clooney frétti af skilnaði Pitt og Jolie í miðju sjónvarpsviðtali við CNN
Leikkonan Angelina Jolie sótti um skilnað frá Brad Pitt á mánudaginn og rötuðu fréttirnar í heimsmiðlana í gær.