Sunna Rannveig Davíðsdóttir varð fyrir skömmu fyrsta íslenska konan til að berjast í atvinnubardaga í blönduðum bardagaíþróttum, MMA. Hún er rísandi stjarna í heimi bardagaíþrótta og fékk Sindri Sindrason að kenna á kröftum hennar í hringnum í gær.
Sýnd var nærmynd af Sunnu í 19:10 í gær þar sem rætt var við vini og aðstandendur Sunnu sem segja hana eiga framtíðina fyrir sér. Stutt er síðan Conor McGregor, ein helsta stjarna MMA sagði að enginn vafi væri á því að þarna væri á ferðinni framtíðarmeistari.
Sindra fannst því góð hugmynd að kanna hvort hann ætti einhvern möguleika í Sunnu í hringnum sem lofaði þó að fara vel með hann.
„Þú ert ekki með góm og svona þannig að ég ætla ekkert að kýla þig á kjammann,“ sagði Sunna við Sindra áður en átökin hófust og má greinilega sjá að Sindra leist ekki á blikuna.
Sunna var ekki lengi að ná Sindra í gólfið en það verður þó að hrósa honum fyrir lipra tilburði og hversu lengi hann þó entist, miðað við andstæðinginn en það tók Sunnu rétt um mínútu að leggja Sindra að velli.
Innslagið allt og bardaga þeirra má sjá hér fyrir ofan en varað er við myndunum sem fylgja.
Sindri entist mínútu í hringnum með Sunnu
Tengdar fréttir

Sunna himinlifandi: Skóflaði í mig heilli krukku af Nutella eftir bardagann
Sunna Rannveig Davíðsdóttir, bardagakona úr Mjölni háði sína fyrstu atvinnuviðureign á Invicta 19 bardagakvöldinu í Kansas City í nótt og bar þar sigurorð af Ashley "Dollface” Greenway.

Sunna með öruggan sigur í fyrsta atvinnubardaganum
Sunna Rannveig Davíðsdóttir vann sinn fyrsta atvinnubardaga í nótt. Sunna fór með sigur af hólmi eftir dómaraákvörðun.

Sunna fór beint í steik eftir að standa á vigtinni
Sunna Rannveig Davíðsdóttir berst í fyrsta sinn sem atvinnumaður í MMA í kvöld en hún náði vigt í gær og fór svo út að borða.

Sunna Rannveig: „Það er eitthvað við það þegar búrið lokast“
Sjáðu leiðina að búrinu hjá Evrópumeistaranum Sunnu Rannveigu Davíðsdóttur sem þreytir fraumraun sína í Invicta á föstudagskvöldið.

Conor McGregor um Sunnu: „Engin spurning að hún verður meistari“
Sjáðu brot úr heimildamynd um Sunnu Rannveigu Davíðsdóttur sem berst í fyrsta sinn sem atvinnumaður annað kvöld.