Litlar líkur eru taldar á því að Brad Pitt verði lögsóttur fyrir líkamsárás gegn 15 ára syni sínum. Þetta hefur fréttastofa TMZ eftir lögmönnum sem vinna að málinu.
Lítið er vitað um atvikið sem átti sér stað í 30 þúsund feta hæð yfir jörðu í einkaþotu á meðan fjölskyldan var á ferðalagi. Greint hefur verið að Brad og Maddox sonur hans og Angelinu Jolie hafi lent í rifrildi. Lögfræðingar hans segja að engar vísbendingar séu að atvikinu og engin leið sé að sanna að Pitt hafi skaðað son sinn á nokkurn hátt.
Þær fregnir sem ratað hafa í fjölmiðla af atvikinu herma að Maddox eigi að hafa reitt föður sinn til reiði með þeim afleiðingum að leikarinn réðst að syni sínum. Angelina á að hafa komið upp á milli þeirra en að einhverjar ryskingar hafi orðið þeirra á milli og hugsanlega meitt hann á öxl.
Samkvæmt lögmönnum Pitt sáust engin ummerki á öxl drengsins og hin meinta líkamsárás hefur ekki verið kærð til lögreglu. Þar sem atvikið átti sér stað í þotu er það í umdæmi FBI og ekki er talið líklegast að alríkislögreglan muni skipta sér meira að málinu þar sem svæðið sé oft grátt á milli foreldrauppeldis og ofbeldis.
