Jordan bauð upp á loftbolta og Durant og félagar sprungu úr hlátri | Myndband Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 25. júlí 2016 23:30 DeAndre Jordan er hræðileg vítaskytta. vísir/getty
DeAndre Jordan, miðherji Los Angeles Clippers og bandaríska landsliðsins, er á heimavelli þegar kemur að því að verja skot, taka fráköst og troða boltanum ofan í körfuna. En hann er skelfileg vítaskytta eins og sást í æfingaleik Bandaríkjanna og Kína í gær. Þegar 49 sekúndur voru eftir af leiknum fór Jordan á vítalínuna en tókst ekki að hitta hringinn, hvað þá að setja boltann ofan í körfuna. Þessi loftbolti hjá Jordan vakti mikla kátínu hjá liðsfélögum hans sem engdust um af hlátri á bekknum eins og sjá má á myndbandinu hér að neðan. Þetta misheppnaða breytti þó engu í stóra samhenginu en Bandaríkjamenn unnu leikinn örugglega, 106-57. Bandaríkin undirbúa sig nú undir Ólympíuleikana í Ríó sem verða settir 5. ágúst næstkomandi. Bandaríkjamenn, sem unnu til gullverðlauna 2008 og 2012, eru með Frakklandi, Venesúela, Ástralíu, Kína og Serbíu í riðli á Ólympíuleikunum.DeAndre Jordan...You have to do betterhttps://t.co/0lN2iSAIfy— Bleacher Report (@BleacherReport) July 25, 2016
NBA Ólympíuleikar 2016 í Ríó Mest lesið PSG - Arsenal 1-1 (4-3) | Vörðu titilinn í vítakeppni Fótbolti Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Körfubolti Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Enski boltinn Af hverju hefst úrslitaleikur Meistaradeildar Evrópu svona snemma? Fótbolti Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Handbolti Slot rekinn frá Liverpool Enski boltinn Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Sport Kolbeinn enn taplaus eftir blóðugan bardaga í Köben Sport „Hann vildi taka fimmtu spyrnuna“ Fótbolti Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Körfubolti Fleiri fréttir Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni „Eins og ljósastaur fyrir drukkinn mann“ Fetar í fótspor föður síns og þjálfar Keflavík Þrír ættliðir Íslandsmeistara: „Nú þarftu fimm í viðbót til að ná mér“ Sjá meira