Hver er þessi kona sem verður aðeins önnur konan til þess að gegna embætti forsætisráðherra landsins á eftir Margaret Thatcher?

Theresa May var fyrst kjörin á þing árið 1997, hún var formaður Íhaldsflokksins á árunum 2002 til 2003 og hefur verið innanríkisráðherra síðan 2010, bæði í fyrri ríkisstjórn Davids Cameron og þeirri síðari. Þá var hún ráðherra kven- og jafnréttismála á árunum 2010 til 2012. Formaður Íhaldsflokksins sinnir innra starfi flokksins en leiðtogi sinnir pólitísku starfi fyrir flokkinn út á við.
Á næstu dögum verður May að ákveða hverjum hún raðar í kringum sig og hvernig hún hyggst skipa ríkisstjórn sína. Hún hefur hafnað því að boða til þingkosninga að nýju og vísar til sterks umboðs Íhaldsflokksins úr síðustu kosningum.
En hver er afstaða May til hinna ýmsu samfélagsmála?

Eins og kunnugt er sagði Cameron af sér eftir niðurstöður þjóðaratkvæðisgreiðslu um veru Breta í Evrópusambandinu en Cameron var ötull stuðningsmaður þess að Bretland segði sig ekki frá sambandinu. Niðurstaðan varð ekki sú og verður Bretland því fyrsta þjóðin sem segir sig úr ESB.
„Brexit þýðir Brexit,“ sagði Theresa May sem sjálf var hlynnt því að Bretland yrði áfram hluti af Evrópusambandinu þrátt fyrir að hún geti seint talist mikill Evrópusinni.
„Það verða engar tilraunir gerðar til þess að halda áfram að vera hluti af Evrópusambandinu, við verðum ekki aftur hluti af sambandinu í gegnum bakdyr og við blásum ekki til annarrar þjóðaratkvæðagreiðslu. Þjóðin kaus með því að yfirgefa Evrópusambandið og sem forsætisráðherra mun ég ganga úr skugga um að við yfirgefum sambandið,“ sagði May. Hún hefur sagst stefna að því að ná bestu mögulegu samningum fyrir Bretland við útgönguna en hún hyggst ekki virkja 50. grein sáttmálans, sem kveður á um útgöngu ríkis, fyrr en á næsta ári.

Frjálst flæði af vörum og þjónustu er lykilatriði fyrir May sem mun leggja ríka áherslu á að ná sem bestum samningum hvað þann þátt fjórfrelsisins varðar. Stærsta verkefni May verður að sameina Íhaldsflokkinn og bresku þjóðina eftir Brexit þjóðaratkvæðagreiðsluna en það má með sanni segja að kosningabaráttan hafi skipt þjóðinni í tvær fylkingar.
Velferðar- og mannréttindamál
„Í fyrsta lagi þurfum við á sterkri leiðtogastjórn að halda til þess að leiðbeina okkur í gegnum þá erfiðu óvissutíma sem framundan eru í pólítíkinni og efnahagslífinu, það þarf, auðvitað, að komast að bestu niðurstöðunni fyrir Bretland þegar kemur að útgöngu úr Evrópusambandinu og að skapa nýtt hlutverk fyrir landið í heiminum.
Í öðru lagi ætlum við að sameina þjóðina og í þriðja lagi þurfum við skýra, nýja, jákvæða framtíðarsýn fyrir landið, sýn fyrir landið sem tryggir að það sé ekki aðeins fyrir nokkra velvalda forréttindapésa heldur sýn sem virkar fyrir alla þjóðfélagsþegna.“ Þetta sagði May í gær þegar hún tók við hlutverki leiðtoga Íhaldsflokksins.

„Því að núna er staðan sú að ef þú fæðist fátækur þá deyrðu að meðaltali níu árum fyrr en aðrir. Ef þú ert fæðist svartur færðu harkalegri meðferð dómskerfisins en ef þú hefðir fæðst hvítur.“ Þá hefur hún talað um launamun kynjanna og barist fyrir betri kjörum fyrir foreldra í fæðingarorlofi.
Þrátt fyrir þetta hefur hún stutt niðurskurð til velferðarmála og hefur almennt kosið gegn því að ríkið verji fjármunum í að skapa störf fyrir ungt fólk sem hefur lengi verið atvinnulaust.
Hún kaus upphaflega gegn því að afnema lög sem bönnuðu hjónabönd samkynhneigðra en árið 2013 hafa skoðanir hennar greinilega þróast því þá kaus hún með því að heimila hjónabönd samkynhneigðra og sagði: „Ef tveimur einstaklingum þykir vænt hvorum um annan, ef tveir einstaklingar eru ástfangnir, þá ættu þeir að geta gengið í hjónaband.“

Stríðsrekstur
Hún studdi stríðið í Írak og einnig stríðin í Afganistan og Sýrlandi.
Feminismi og jafnrétti
Þrátt fyrir að May sé önnur konan til þess að gegna embætti forsætisráðherra er hún fyrsti forsætisráðherra Bretlands sem opinberlega skilgreinir sjálfa sig sem feminista. David Cameron var gagnrýndur fyrir að tala í kringum orðið og forðast að kalla sjálfan sig feminista fullum fetum.
May kom fram í viðtali árið 2012 hjá tímaritinu Total Politics þar sem hún lýsti skoðunum sínum um feminisma og jafnrétti.

„Það er enn meiri ástæða fyrir mig að standa mig vel, til þess að sýna að kona í minni stöðu getur vel unnið vinnuna sína,“ sagði hún. Hún stofnaði Women2Win, samtök sem vinna að því að fjölga kvenkyns þingmönnum.
Tískugoðið Theresa May
May hefur fundið það á eigin skinni hvernig það er að vera kona í pólitík en allt varð vitlaust í mars á þessu ári vegna þess að kjóllinn sem May kom í til þingstarfa var talinn ansi fleginn. Breskir samfélagsmiðlanotendur skiptust í fylkingar, annars vegar þeir sem gagnrýndu klæðnað þáverandi innanríkisráðherra og þótti hann ósmekklegur og hins vegar þeir sem hneyksluðust á umræðunni og yfir því að kvenbrjóst gætu skapað svo mikið fár.

Hún hefur sérstaklega vakið athygli fyrir skemmtilega og litríka skó.
May tekur við forsætisráðuneytinu á morgun og það verður áhugavert að fylgjast með þessum reynslubolta í breskri pólitík taka við stjórn Bretlands á þessum umrótatímum. Hér að neðan má sjá myndband sem Guardian gerði um May.