Alþýðufylkingin býður fram lista í næstu Alþingiskosningum Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar 16. maí 2016 10:49 Þorvaldur Þorvaldsson formaður Alþýðufylkingarinnar í Hinu húsinu. Vísir/Daníel
Alþýðufylkingin boðar til opins fundar um komandi kosningar til Alþingis þann 25. maí næstkomandi. Hann verður haldinn í Friðarhúsi, Njálsgötu 87 í Reykjavík. Á fundinum verða lögð drög að kosningastefnuskrá flokksins og hafinn undirbúningur fyrir kosningar til Alþingis sem verða að öllum líkindum í haust. Fyrirhugaðar kosningar áttu eins og kunnugt er að vera á næsta ári en hefur verið flýtt eins og boðað var þegar ný ríkisstjórn var mynduð fyrr á árinu. Allir eru boðnir velkomnir á fundinn nema „auðvaldið“ eins og segir í fundarboðun fylkingarinnar: „Allir velkomnir, nema þá helst auðvaldið.“ Formaður Alþýðufylkingarinnar er Þorvaldur Þorvaldsson. Flokkurinn bauð fram lista í alþingiskosningunum árið 2013 og fékk hann þá 0,04 prósent atkvæða. Það voru í heildina 118 atkvæði. Því fékk flokkurinn að sjálfsögðu ekki mann kjörinn á Alþingi. Þrátt fyrir það sögðust félagsmenn stefna á áframhaldandi samstarf. Bauð flokkurinn aftur fram í sveitarstjórnarkosningum árið eftir og leiddi formaðurinn listann. Hlaut flokkurinn 0,4 prósent atkvæða að lokum í þeim kosningum.
Alþingi Kosningar 2016 Mest lesið Metinn sakhæfur og málið fyrir luktum dyrum Innlent Enn stærri jarðskjálfti á svipuðum slóðum Innlent Fá engar bætur fyrir stolin bíl Innlent Háttsettur sænskur diplómati handtekinn fyrir njósnir Erlent Grunur um frelsissviptingu í miðbænum Innlent Hjörtur Torfason er látinn Innlent Sigldu fram á lík milli Engeyjar og Viðeyjar Innlent Menendez bræður geta nú sótt um reynslulausn Erlent Þorsteinn Vilhjálmsson er látinn Innlent „Þetta er mikil áskorun en á sama tíma tek ég henni bara vel“ Innlent Fleiri fréttir Sigldu fram á lík milli Engeyjar og Viðeyjar Þorsteinn Vilhjálmsson er látinn Metinn sakhæfur og málið fyrir luktum dyrum Grunur um frelsissviptingu í miðbænum Enn stærri jarðskjálfti á svipuðum slóðum Hjörtur Torfason er látinn Fá engar bætur fyrir stolin bíl „Þetta er mikil áskorun en á sama tíma tek ég henni bara vel“ Syndir 1.600 kílómetra í kringum landið: Borðar tíu þúsund kalóríur á dag fyrir svaðilförina Ekkert fundist af báti sem sagður er hafa hvolft Gjörunnin matvæli tæpur helmingur af orkuinntöku landsmanna Tilkynnti um stolið hjól og réðst svo á þjófinn „Þetta var ekki rétt, alveg klárlega“ Máttu skikka nemanda í tvö sjúkrapróf samdægurs Njósnari sér að sér og synt í kring um Ísland Vill deila þekkingu á jarðvarma með Úkraínu Bað forseta að taka „stjórnarliða á skólabekk og tukta þá til“ Sjö ára fangelsi fyrir tvær tilraunir til manndráps Blindir vilja Hljóðbókasafnið heim Stjórnarandstaða kvartar undan starfi í velferðarnefnd Breyttar forsendur og pólitískar áherslur á bak við ákvörðunina Úlfar hættir sem lögreglustjóri Ráðherra hafnaði loftslagsrannsókn vegna ófullnægjandi lagaramma Hafnar því alfarið að hafa lekið gögnunum Nú má heita Gúníta Ljósynja Dawn Fólk varað við aukinni hættu á gróðureld Sala á Íslandsbankabréfum hafin og Jón Óttar sakar Ólaf Þór um leka Rannsóknarleyfi Rastar hafnað Telur víst að gögnin hafi komið frá sérstökum sjálfum Miðhúsabraut lokuð eftir að ekið var á vegfaranda á hlaupahjóli Sjá meira