Ferðamenn eyddu 61% meira á fyrsta ársfjórðungi Sæunn Gísladóttir skrifar 20. apríl 2016 13:01 Í mars komu um 116 þúsund ferðamenn til landsins um Leifsstöð samkvæmt talningu Ferðamálastofu. Vísir/Valli
Erlend greiðslukortavelta í mars síðastliðnum nam tæpum 15 milljörðum króna samanborið við 9,7 milljarða í mars 2015. Um er að ræða 55 prósent aukningu á milli ára. Sé litið á fyrsta ársfjórðung í heild nam kortavelta erlendra ferðamanna um 40 milljörðum króna, það gerir 61 prósent aukningu á milli ára en kortaveltan var 24,7 milljarðar á fyrsta ársfjórðungi árið 2015. Kortavelta á hvern erlendan ferðamann sem kom til landsins í mars jókst um rúmlega 12 prósent miðað við sama mánuð í fyrra. Erlend kortavelta í mars jókst í öllum útgjaldaliðum. Líkt og í febrúarmánuði var mikil aukning í farþegaflutningum, eða 131 prósent frá sama mánuði í fyrra. Erlendir aðilar greiddu í mars með kortum sínum alls 3,2 milljarða króna fyrir farþegaflutninga, en til að setja vöxt undanfarinna missera í samhengi má nefna að kortavelta í sama flokk nam 3,7 milljörðum allt árið 2013. Jafnframt er mars fimmti mánuðurinn í röð þar sem greiðslukortavelta vegna flugferða meira en tvöfaldast frá fyrra ári. Þá var í mars töluverð aukning í kortaveltu ferðamanna í verslun og versluðu ferðamenn fyrir rúmlega 1,7 milljarð, sem er 40 prósent meira en í sama mánuði í fyrra. Mestur var vöxturinn í dagvöruverslun, um 85 prósent og þar næst, 51 prósent í fataverslun. Kortavelta ferðamanna í bílaleigum í mars var um helmingi meiri en í sama mánuði í fyrra og hefur hún tvöfaldast frá mars 2014. Í öðrum flokkum jókst kortavelta einnig á milli ára, sem dæmi um 53 prósent í veitingaþjónustu og 43 prósent í gistiþjónustu. Í mars komu um 116 þúsund ferðamenn til landsins um Leifsstöð samkvæmt talningu Ferðamálastofu, 38 prósent fleiri en í sama mánuði í fyrra. Til samanburðar eru það fleiri ferðamenn en komu í júní 2014, þriðja fjölmennasta ferðamannamánuði þess árs.
Ferðamennska á Íslandi Mest lesið Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Julebryg verði mun ódýrari Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Julebryg verði mun ódýrari Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Sjá meira