Carmen Tyson-Thomas hristir vel upp í 1. deild kvenna Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 9. mars 2016 18:00 Carmen Tyson-Thomas í leik með Keflavík í fyrra. Vísir/Vilhelm
Carmen Tyson-Thomas fór mikinn með Keflavík í Domino´s deild kvenna í körfubolta í fyrravetur og sannaði þar að þar er á ferðinni frábær leikmaður. Það var því von á góðu þegar Njarðvíkingar sömdu við hana eftir áramót og það er óhætt að segja að Tyson-Thomas sé búin að hrista vel upp í 1. deild kvenna þrátt fyrir aðeins tæplega tveggja mánaða dvöl á landinu. Carmen Tyson-Thomas hefur nú spilað fimm leiki og Njarðvíkurliðið hefur unnið þá alla með tólf stigum eða meira. Hún er með 34,0 stig, 16,8 fráköst og 6,4 stoðsendingar að meðaltali og hefur skorað 40 stig í síðustu tveimur leikjum. Njarðvík er að keppa við KR um annað sætið deildarinnar sem mun gefa sæti í úrslitaeinvíginu við Skallagrím um eitt laus sæti í Domino´s deild kvenna. KR er enn með tveimur stigum meira en Njarðvík en Njarðvíkurstúlkur eiga þrjá leiki inni og þurfa því bara að treysta á sig sjálfar. Njarðvík var einmitt að spila við KR í gær og það á heimavelli KR-kvenna. Tyson-Thomas var með 40 stig, 17 fráköst og 6 stoðsendingar í 25 stiga sigri, 84-56. Þetta var í annað skiptið sem Njarðvík vinnur KR síðan að Tyson-Thomas mætti í Ljónagryfjuna. Njarðvík vann 4 af 9 leikjum sínum fyrir komu Carmen Tyson-Thomas og stigatalan var -27 í þeim. Njarðvík er að vinna þessa leiki með Tyson-Thomas innanborðs með 23,4 stigum að meðaltali í leik. Hún hefur því gerbreytt Njarðvíkurliðinu sem er nú til alls líklegt í baráttunni um sæti Domino´s deildinni. Skallagrímur hefur þegar tryggt sér deildarmeistaratitilinn en eina tap liðsins er einmitt í eina leiknum á móti Tyson-Thomas. Njarðvík vann síðasta innbyrðisleik liðanna með 14 stiga mun, 79-65 og þar skiptu máli að Tyson-Thomas var með 34 stig og 23 fráköst í leiknum. Næsti leikur Njarðvíkur verður einmitt á móti Skallagrími í Borgarnesi á laugardaginn kemur.
Dominos-deild kvenna Íslenski körfuboltinn Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport Uppgjörið: KA bikarmeistari í fyrsta sinn Íslenski boltinn Veðmál systkina til lykta leitt: „Veit að ég mun aldrei tapa fyrir honum“ Sport Iðrast gjörða sinna: „Var klárlega rangt af mér“ Íslenski boltinn Sló 24 ára gamalt met Kára Steins, aftur Sport Bað börnin sín afsökunar á dánarbeðinum Fótbolti „Það hlaut að koma að því“ Íslenski boltinn Gestirnir ívið betri en engin mörk skoruð Enski boltinn Pössuðu að leikmenn Fulham væru aldrei einar með Al Fayed Enski boltinn UEFA sé að missa þolinmæðina gagnvart Íslandi Íslenski boltinn Fleiri fréttir Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Vonarstjarna ÍR til Bandaríkjanna Morris spilar með Grindavík í vetur Golden State hetjan Al Attles látin Frábærir þrír leikhlutar ekki nóg á móti Bretum Kallaði Kevin Durant veikgeðja Lykilmenn Íslandsmeistaranna framlengja samninga sína Sjá meira