Þrír síðustu tapleikir Keflavíkurliðsins hafa komið á heimavelli Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 9. febrúar 2016 13:00 Keflvíkingar létu Earl Brown Jr. fara. Vísir/Ernir
Keflvíkingar missti toppsætið í Domino´s deild karla til KR-inga í gærkvöldi þegar Keflavíkurliðið tapaði á móti Grindavík á heimavelli sínum. Keflvíkingar hafa þarf með tapað tveimur af síðustu þremur heimaleikjum sínum og fengið á sig meira en hundrað stig í síðustu tveimur leikjum liðsins á Sunnubrautinni. Keflavík vann 19 stiga sigur á Snæfelli í leiknum á undan þrátt fyrir að fá á sig 112 stig. Þriggja stiga skytturnar brugðust á móti Grindavík en þeir Valur Orri Valsson (5/0), Magnús Þór Gunnarsson (3/0) og Reggie Dupree (4/1) nýttu aðeins 1 af 12 þriggja stiga skotum sínum í leiknum. Keflvíkingar virðast vera að gefa aðeins eftir og þrír síðustu tapleikir Keflavíkurliðsins í Domino´s deildinni hafa komið á heimavelli. Liðið hefur unnið hin toppliðin á heimavelli í vetur, KR, Stjörnuna, Hauka og Þór og var því í góðum gír á heimavelli sínum fyrir áramót. Undanfarna tvo mánuði hefur liðið hinsvegar tapað mikilvægum stigum á heimavelli sínum. Keflavík tapaði fyrir FSu 4. desember (100-110) og á móti Njarðvík 22. janúar (86-92). Grindavíkur vann síðan 101-88 sigur í Keflavík í gær. Síðasta tap Keflvíkinga á útivelli kom á móti Tindastól 26. nóvember á síðasta ári. Keflavíkurliðið hefur unnið alla þrjá útileiki sína í deildinni síðan þá. Keflavík er aftur á móti með aðeins 50 prósent sigurhlutfall á Sunnubrautinni (3 sigrar - 3 töp) undanfarna 66 daga.Síðustu sex heimaleikir Keflavíkurliðsins í Domino´s deild karla: 10 stiga tap á móti FSu (100-110) 2 stiga sigur á Stjörnunni (87-85) 8 stiga sigur á Þór Þorl. (91-83) 6 stiga tap á móti Njarðvík (86-92) 19 stiga sigur á Snæfelli (131-112) 13 stiga tap á móti Grindavík (88-101)Samtals: 3 sigrar og 3 töp
Dominos-deild karla Mest lesið Brjálaðist og gaf vellinum fokkmerki Golf Salah gagnrýndi stuðningsmenn Liverpool Enski boltinn Sjáðu mörkin: Berglind í hefndarhug með fleiri en allt Valsliðið í sumar Íslenski boltinn Óðs manns æði Arnars: „Ég ætla samt að gera þetta“ Fótbolti Sætur sigur HK og Vilhelm bjargaði stigi fyrir ÍR Íslenski boltinn Eitt töfrabragð dugði gegn United í dýrmætum sigri Enski boltinn „Ég get ekki beðið“ Handbolti „Þurfa allar og við þjálfararnir að líta í eigin barm“ Íslenski boltinn Uppgjörið: Breiðablik - Valur 4-0 | Berglind refsaði gamla liðinu í stórsigri Íslenski boltinn Selirnir verða heiðursgestir á fyrsta heimaleik KR Íslenski boltinn Fleiri fréttir Friðrik Ingi hættur með Hauka Hörður kominn undan feldinum Harkaði af sér veikindi og Nuggets tryggðu oddaleik Úlfarnir í úrslit vestursins Fékk að mæta aðeins seinna í vinnu eftir Íslandsmeistara fögnuð „Menn vissu bara upp á sig sökina“ „Þegar þeir eru orðnir þreyttir hinum megin þá erum við með eitt stykki Basile“ Uppgjörið: Tindastóll - Stjarnan 110-97 | Stólarnir svöruðu og leiða nú úrslitaeinvígið Lovísa samskiptastjóri, „mini-mes“ og ástæðan fyrir engum leikhléum Vonast til að Giannis standist freistinguna og klári ferilinn hjá Milwaukee Stólarnir klárir og vita hvað fór úrskeiðis í leik tvö: „Við misstum hausinn“ „Einhvers staðar er skemmt epli ef niðurstaða þingsins var svona afdráttarlaus“ Aftur í Síkið: „Held að menn séu búnir að grafa þetta“ Slógu toppliðið út og komust í austur úrslitin annað árið í röð Myndaveisla: Haukar Íslandsmeistarar eftir ótrúlegan oddaleik „Að lokum var það betra liðið sem vann“ „Við ætluðum ekki að tapa þremur leikjum í röð“ Tatum með slitna hásin Uppgjörið: Haukar - Njarðvík 92-91 | Haukar Íslandsmeistarar 2025 Sjáðu stemmningsmyndbandið fyrir oddaleikinn „Mætum óttalaus“ Settu nýtt met í heppni og fá velja fyrstir Meistararnir á bjargbrún og langri bið Knicks að ljúka Þriggja ára reglan heyrir sögunni til Steinar Kaldal: Ótrúleg tilfinning Hinn skapheiti Agravanis missir af næsta leik úrslitaeinvígisins Uppgjörið: Ármann - Hamar 91-85 | Ármann leikur í Bónus deildinni á næstu leiktíð Lögmálið: „Er eitthvað að því að Randle sé búinn að vera betri en Ant?“ Indiana tók Cleveland í bakaríið „Pabbi og mamma Milka, Hesseldal, Basile og Dinkins hljóta að koma sterk inn í haust“ Sjá meira