Fagleg æskulýðsmál Árni Guðmundsson skrifar 29. júlí 2015 07:00 Forseti bæjarstjórnar Hafnarfjarðar og formaður Íþrótta- og tómstundaráðs Hafnarfjarðar rita grein í Fréttablaðið þ. 21. júlí sl. Grein þeirra, Faglegt æskulýðsstarf í Hafnarfirði, er sennilega sett fram sem einhvers konar svar við grein minni í Fjarðarpóstinum þ. 9 júlí sl. er nefndist Er björt framtíð í æskulýðsmálum (í Hafnarfirði) sem og umfjöllun Hafnfirska vefmiðilsins Bærinn okkar undir fyrirsögninni Í ruslflokk á sviði æskulýðsmála. Eins og fyrirsagnirnar gefa til kynna má vera ljóst að sitt sýnist hverjum hvað varðar skipulagsbreytingar í æskulýðsmálum hjá bæjarfélaginu. Sá sem þetta ritar getur vel tekið undir það að æskulýðsstarf í Hafnarfirði sé faglegt því hjá ÍTH (Íþrótta- og tómstundaráði Hafnarfjarðar) starfar fjöldi vel menntaðra og hæfileikaríkra starfsmanna af heilindum og trúmennsku en við stórfellt skilningsleysi bæjaryfirvalda á þessum mikilvæga málaflokki. Í grein forseta og formanns ÍTH er nánast í engu fjallað um stjórnsýslubreytingar æskulýðsmála sem slíkar en þess í stað, rætt um að tillögur geti misskilist, nú þurfi að fara fram samtal, fólk eigi ekki að vera hrætt við breytingar m.m. Kjarni málsins er þessi 29. júní sl. voru tillögur um stjórnsýslubreytingar hjá Hafnarfjarðarbæ fyrst „kynntar“ bæjarfulltrúum á lokuðum fundi og í kjölfar „kynningarinnar“ var haldinn sérstakur aukafundur í Bæjarstjórn Hafnarfjarðar. Um 90 mínútum eftir að „tillögurnar“ voru fyrst gerðar opinberar var búið að samþykkja æskulýðshluta þeirra af meirihluta í bæjarstjórn Hafnarfjarðar? Algerlega umræðulaust, án samráðs eða skoðanaskipta við nokkra þá sem málið raunverulega varðar eða snertir, án samráðs eða aðkomu þeirra sem í geiranum starfa, án samráðs við ungmenni í ungmennaráði Hafnarfjarðar, án nokkurrar kynningar eða opinberrar umræðu í bæjarfélaginu. Í kjölfarið var svo einhverjum lykilstjórnendum æskulýðsmála sagt upp störfum. Og nú síðast þá hafa grunnskólar Hafnarfjarðar auglýst laus störf í æskulýðsgeiranum og þá væntanlega í samræmi við nýtt „skipurit“. Að sögn forseta bæjarstjórnar (sbr. upptöku af fundi bæjarstjórnar þ. 29. júní) var nauðsynlegt að samþykkja þessar tillögur til þess að skólastjórnendur gætu hafið nauðsynlegan undirbúning nú þegar. Stjórnkerfisbreytinguna bráðnauðsynlegu er því miður ekki hægt flokka undir annað en fúsk. Oft á tíðum hafa málaflokkar og deildir verið flutt á milli sviða í bæjarfélögum en haldið viðfangsefnum sínum í öllum meginatriðum. Í þessu tilfelli er gengið mun lengra því samþykktin felur í sér að frístundaheimili og félagsmiðstöðvar bæjarfélagsins eru settar undir forræði einstakra skólastjórnenda (eins og þeir hafi ekki nóg á sinni könnu) en æskulýðs- og íþróttafulltrúi verði „fagstjóri“ frístundamála sem muni hafa það hlutverk að ráðleggja skólastjórnendum, sem ekki hafa neina sérþekkingu í tómstunda- og félagsmálafræðum, um það hvernig á að reka slíkt starf í stað þess að æskulýðsdeildin geri það og með ágætum eins og verið hefur. Talandi um einfaldar boðleiðir, sem var ein af fáum röksemdum fyrir þessum undarlegu breytingum. Önnur röksemd var að skólarnir starfi eftir s.k. SMT agastjórnunarkerfi en það geri æskulýðsstarfið ekki. Svo sé „eðlilegt“, af því að starfsemin sé í sama húsnæði, að skólastjórar fari með forræðið. Í þeim nokkru og fátæklegu línum sem eignaðar eru æskulýðsmálum að öðru leyti í þessari skýrslu er rúsínan í pylsuendanum þessi: „Tillagan er rökstudd bæði út frá faglegum og rekstrarlegum sjónarmiðum.“ Þrátt fyrir afar ítarlega leit finnast þessi faglegu rök ekki enda augljóst af lestri skýrslunnar að hvorki Capacent, R3 né HLH ehf. búa yfir neinni faglegri þekkingu á sviði æskulýðsmála. Spurt er Á agastjórnunarkerfi skólanna að marka alla tilveru barna og ungmenna og hvernig getur slíkt verið ástæða til grundvallarbreytinga í æskulýðsmálum bæjarfélagsins? Eiga hafnfirsk ungmenni sem af einhverjum ástæðum tekst ekki að aðlaga sig agavaldi skólans að gjalda þess í frítíma sínum? Hvaða sérþekkingu hafa skólastjórar á sviði tómstunda- og félagsmálafræða? Er ekki bara tilvalið að skólastjórar sinni alfarið því sem þeir eru bestir í sem að öllu jöfnu er að reka skóla? Um þetta mætti hafa mörg fleiri orð en verður ekki gert að sinni. „Ræðum málin til enda“ skrifar forseti bæjarstjórnar sem hljómar reyndar ekki sérstaklega sannfærandi. Í fyrsta lagi þegar staðið er frammi fyrir orðnum hlut í æskulýðsmálum og í öðru lagi þegar litið er á ferli þessa máls í bæjarstjórn Hafnarfjarðar. Ef forseti bæjarstjórnar meinar eitthvað með þessum skrifum þá er fyrsta skrefið af hans hálfu að draga þessa samþykkt til baka og skapa með því raunverulegar forsendur til alvöru samtals um æskulýðsmál í Hafnarfirði. Ekki veitir af því öll viljum við áframhaldandi faglegt æskulýðsstarfi í Hafnarfirði – ekki satt? Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Árni Guðmundsson Mest lesið Hin drepleiðinlega Bókun 35 Helgi Hrafn Gunnarsson Skoðun Ísland: Þessi sigur jaðrar við kraftaverk Carl Baudenbacher Skoðun Ekki leggja þjóðinni orð í munn Anna Margrét Bjarnadóttir Skoðun Barnið sem mælikvarðinn sér ekki Rebekka Rafnsdóttir Skoðun Hvernig hefurðu það? Carmen Maja Valencia Skoðun Utanríkisráðherra setur EES-samninginn í uppnám Gunnar Bragi Sveinsson Skoðun Forstjóri CIA heimsækir Moskvu Arnór Sigurjónsson Skoðun Af klósettferðum og frelsinu til að njóta almannarýmis Eva Dögg Sigurðardóttir Skoðun Fortíðin vann Baldur Johnsen Skoðun Er landsbyggðin hluti af lausninni? Hildur Sólveig Sigurðardóttir Skoðun Skoðun Skoðun Sammála – leggjum þjóðinni ekki orð í munn Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Goðarnir fóru aldrei – þeir skiptu bara um nafn Ragnar Thorarensen skrifar Skoðun Hin drepleiðinlega Bókun 35 Helgi Hrafn Gunnarsson skrifar Skoðun Spírallinn Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun „Að tilheyra“, tækifæri til að styðja fyrr við unga fólkið okkar Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Barnið sem mælikvarðinn sér ekki Rebekka Rafnsdóttir skrifar Skoðun Er landsbyggðin hluti af lausninni? Hildur Sólveig Sigurðardóttir skrifar Skoðun Netöryggi snýst líka um að þora að segja frá Margrét V. Helgadóttir skrifar Skoðun Fortíðin vann Baldur Johnsen skrifar Skoðun Getur maður verið rasisti án þess að gera sér grein fyrir því? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Ekki leggja þjóðinni orð í munn Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Hvernig hefurðu það? Carmen Maja Valencia skrifar Skoðun Minna kerfi, betri þjónusta Róbert Ragnarsson skrifar Skoðun Forstjóri CIA heimsækir Moskvu Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Trump lítið annað en hvíslari í leikritinu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ísland: Þessi sigur jaðrar við kraftaverk Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Af klósettferðum og frelsinu til að njóta almannarýmis Eva Dögg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir skrifar Skoðun Utanríkisráðherra setur EES-samninginn í uppnám Gunnar Bragi Sveinsson skrifar Skoðun Þjóðin sagði nei – megum við þá ganga frá eftir okkur? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Foreldrar og þjálfarar: Hvar liggja mörkin? Ragna Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórnin tapaði – og ætti að segja af sér Eldur Smári Kristinsson skrifar Skoðun Eigum við ekki bara að taka til heima hjá okkur? Guðjón Idir skrifar Skoðun Hugvekja á Höfuðdaginn Ívar Örn Hauksson skrifar Skoðun Við munum ekki hafa neitt neitunarvald Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun NEI heldur öllu opnu. JÁ er vegferð að lokun Haraldur Ólafsson skrifar Skoðun Hvað græði ég á að segja já? Björn B Björnsson skrifar Skoðun Opið bréf til óákveðinna kjósenda Gylfi Zoega skrifar Skoðun Þyrnirinn sem náði í gegn Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Stærsta lygin Sverrir Björnsson skrifar Sjá meira
Skoðun „Að tilheyra“, tækifæri til að styðja fyrr við unga fólkið okkar Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar
Skoðun Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir skrifar