Það munar aðeins þremur stigum á FH, sem er í efsta sæti deildarinnar, og spútnikliði Valsmanna sem er í fjórða sæti. KR og Breiðablik eru síðan á milli. Öll þessi fjögur lið eru líkleg til að berjast um Íslandsmeistaratitilinn í ár.
Fallbaráttan verður líka æsispennandi ef marka má fyrri umferðina og það hversu neðstu liðin hafa verið dugleg að finna sér leikmenn fyrir seinni umferðina í Pepsi-deildinni. Það er mikið undir að halda sæti sínu í deildinni og því eru liðin tilbúin að leggja út pening fyrir nýjum leikmönnum.
Félagsskiptaglugginn opnaði í morgun og er opinn í sextán daga eða til 31. júlí næstkomandi. Þegar glugginn lokar aftur rétt fyrir Verslunarmannahelgi þá verða eftir níu umferðir af Íslandsmótinu en tvær umferðir verða spilaðar á meðan að glugginn er opinn.
Tólfta umferðin um næstu helgi verður fyrsta umferðin sem nýir leikmenn mega fara að spila með liðum sínum og það verður fróðlegt að sjá hvaða áhrif þeir munu hafa á leik sinna liða sem mörg hver þurfa á innspýtingu að halda.
Hér fyrir neðan má þarfagreiningu Fréttablaðsins á liðunum tólf í Pepsi-deild karla í fótbolta.

FH 1. sæti
Hvað vantar?
Ekkert er stutta svarið. FH-ingar eru með besta hópinn og eru að auki búnir að kalla Emil Pálsson til baka frá Fjölni.
Hringja kannski í
Erlendan markvörð. Róbert Örn Óskarsson vinnur fá stig og hefur aðeins haldið hreinu í tveimur deildarleikjum.
➜ Emil Pálsson (úr láni)
KR 2. sæti
Hvað vantar?
KR er búið að fá framherja en þarf helst að styrkja bakvarðarstöðurnar með leikmönnum sem eru bakverðir að upplagi.
Hringja kannski í
Niclas Vemmelund, Guðmund Reyni Gunnarsson.
➜ Hólmbert Aron Friðjónsson
Breiðablik 3. sæti
Hvað vantar?
Framherja og/eða kantmann. Átján mörk í fyrri umferðinni er ekkert til að skammast sín fyrir en Blikar þurfa meiri slagkraft fram á við ætli þeir sér að berjast um titilinn allt til loka.
Hringja kannski í
Þorstein Má, Dion Jeremy Acoff, Emil Atlason, Ævar Inga Jóhannesson.
Valur 4. sæti
Hvað vantar?
Ólafur Jóhannesson vill fá þrjá leikmenn í glugganum. Hann er væntanlega að horfa til hægri bakvarðar, miðjumanns og framherja til vara.
Hringja kannski í
Niclas Vemmelund, Emil Atlason, Guðjón Pétur Lýðsson, Elfar Árna Aðalsteinsson, Guðmund Atla Steinþórsson.
Fjölnir 5. sæti
Hvað vantar?
Fjölnismenn eru búnir að ná í tvo leikmenn, Neftalí og Chopart, en þurfa enn miðjumann til að fylla skarð Emils Páls.
Hringja kannski í
Egil Jónsson, Gunnlaug Hlyn Birgisson, Sebastien Uchechukwu Ibeagha, Pape Mamadou Faye.
➜ Jonatan Neftalí, Kennie Chopart
Stjarnan 6. sæti
Hvað vantar?
Stjörnumenn hafa aðeins skorað 13 mörk og þurfa meira púður í sóknarleikinn. Og kannski alvöru gras á völlinn en Stjarnan hefur ekki enn unnið heimaleik í sumar.
Hringja kannski í
Emil Atlason, Erik Tönne, Elfar Árna Aðalsteinsson.
Fylkir 7. sæti
Hvað vantar?
Hægri bakvörð og miðjumann og jafnvel markvörð. Það er spurning hvort Ólafur Ingi Skúlason, sem er án félags, snúi aftur í Árbæinn.
Hringja kannski í
Ólaf Inga Skúlason, Niclas Vemmelund, Sebastien Uchechukwu Ibeagha, Archange Nkumu.
ÍA 8. sæti
Hvað vantar?
Miðjumann, miðvörð og kantmann. Sóknarleikur ÍA hefur batnað til mikilla muna í síðustu leikjum en Skagamenn geta enn bætt vörnina og miðjuna.
Hringja kannski í
Gunnlaug Hlyn Birgisson, Aron Heiðdal, Daða Bergsson, Sebastien Uchechukwu Ibeagha, Archange Nkumu.
Leiknir 9. sæti
Hvað vantar?
Leiknismenn eru komnir í bullandi fallbaráttu og þurfa að styrkja sig. Helst með framherja eða framliggjandi leikmönnum en liðið hefur aðeins skorað tólf mörk í fyrri umferðinni.
Hringja kannski í
Gunnlaug Hlyn Birgisson, Daða Bergsson, Brynjar Jónasson, Pape Mamadou Faye, Brynjar Benediktsson.
Víkingur 10. sæti
Hvað vantar?
Víkingar eru búnir að fá serbneskan framherja en þurfa meira fram á við. Einnig hægri bakvörð og miðjumann.
Hringja kannski í
Emil Atlason, Niclas Vemmelund, Daða Bergsson, Elfar Árna Aðalsteinsson, Sebastien Uchechukwu Ibeagha.
➜ Vladimir Tufegdzic
ÍBV 11. sæti
Hvað vantar?
Gunnar Heiðar Þorvaldsson er snúinn aftur heim og styrkir Eyjaliðið gríðarlega en það þarf að styrkja miðjuna.
Hringja kannski í
Egil Jónsson, Aron Heiðdal, Sebastien Uchechukwu Ibeagha, Archange Nkumu, Jón Gunnar Eysteinsson.
➜ Gunnar Heiðar, Jose Enrique
Keflavík 12. sæti
Hvað vantar?
Allt. Keflavík er í afar vondri stöðu og stefnir hraðbyri niður í 1. deild. Það þarf nánast leikmenn í allar stöður.
Hringja kannski í
Aron Heiðdal, Pape Mamadou Faye, Daða Bergsson, Farid Zato, Jón Gunnar Eysteinsson, Gunnlaug Hlyn Birgisson.
➜ Chuck Chijindu