Sjáðu draumamark Tryggva, erfitt víti í rokinu og Valdimar leiða Víking til sigurs Sindri Sverrisson skrifar 27. ágúst 2025 07:30 Valdimar Þór Ingimundarson og Nikolaj Hansen unnu vel saman í Víkinni í gærkvöld og fagna hér einu markanna. vísir/Diego Tryggvi Hrafn Haraldsson skoraði glæsilegt mark úr aukaspyrnu í mögnuðum 4-3 sigri Vals gegn Aftureldingu í gær og Víkingar skelltu nýkrýndum bikarmeisturum Vestra, 4-1. Öll mörkin má nú sjá á Vísi.
Valur hélt sér á toppnum með sigrinum í gær, eftir að hafa verið 2-0 undir í hálfleik. Þórður Gunnar Hafþórsson og Hrannar Snær Magnússon skoruðu mörkin í fyrri hálfleik en á fyrsta korterinu í seinni hálfleik komu Markus Nakkim, Aron Jóhannsson og Jónatan Ingi Jónsson Val yfir. Mörkin höfðu verið lagleg en ekkert þó fallegra en það sem Tryggvi skoraði svo beint úr aukaspyrnu. Hrannar Snær minnkaði muninn í lokin úr vítaspyrnu, sem hann þurfti reyndar að taka tvisvar því boltinn vildi ekki haldast kyrr í vindinum. Sigur Víkinga á nýkrýndum bikarmeisturum Vestra var afar öruggur. Valdimar Þór Ingimundarson var valinn maður leiksins í Stúkunni en hann lagði upp bæði mörk Nikolaj Hansen og skoraði sjálfur eitt. Birkir Eydal minnkaði muninn á 77. mínútu með þrumuskoti í slá og inn en Helgi Guðjónsson innsiglaði sigur Víkings í kjölfarið. Valur heldur tveggja stiga forskoti á Víking á toppi deildarinnar, eftir 20 umferðir af 27. Deildinni verður skipt upp eftir tvær umferðir og eru Vestramenn í hnífjafnri baráttu um að halda sér í efri hlutanum fyrir skiptingu, í 6. sæti og fyrir ofan KA á markatölu. Þeir eru þó aðeins fimm stigum fyrir ofan Aftureldingu sem er í fallsæti.
Besta deild karla Afturelding Valur Víkingur Reykjavík Vestri Mest lesið Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Enski boltinn Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Íslenski boltinn Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Enski boltinn Arsenal úr leik eftir tap gegn D-deildarliði Enski boltinn Raddlaus eftir kraftaverk: Sáum Grimsby slá út Man. Utd og vildum gera eins Enski boltinn „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Íslenski boltinn „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ Íslenski boltinn Hjartnæm ræða Putellas: „Ekki hlusta ef einhver segir að þú getir þetta ekki“ Fótbolti Draumurinn að þjálfa Blika Íslenski boltinn Fleiri fréttir Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Markahæsta umferð sögunnar Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Gylfi valinn besti leikmaður ársins „Óvíst hvar Stefan Ljubicic mun spila“ „Engin krafa frá stjórn um að ná sæti í Evrópukeppni“ Leik lokið: Víkingur-Fram 2-2 | Víkingar rétt sluppu við súra sigurhátíð Óskar Hrafn: „Krefst þess að menn séu ekki saddir“ Lárus Orri hættur með ÍA og Heimir sagður á leiðinni Uppgjörið: KA-ÍBV 5-1 | KA fallið þrátt fyrir stórsigur Sjá meira