Körfubolti

Ellefu milljónir sáu stórleikinn á jóladag

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Úr stórleiknum á Jóladag.
Úr stórleiknum á Jóladag. vísir/getty
Það var greinilega mikil stemning fyrir stórleik Golden State og Cleveland í NBA-deildinni á jóladag.

Tæplega 11 milljónir horfðu á leikinn í Bandaríkjunum og það er besta áhorf á jóladagsleik þar í landi í ein fjögur ár.

Það er líka bæting um ein 17 prósent í áhorfi frá leik Cleveland og Miami á síðasta ári.

Fyrir fjórum árum var jóladagsleikurinn opnunarleikur NBA eftir verkfall og því kom gott áhorf ekki á óvart þar.

NBA-deildin er því augljóslega í mikilli sókn.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×