Handbolti

Landsliðsfyrirliðinn markahæstur í stórsigri Barcelona

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Guðjón Valur skoraði átta mörk úr níu skotum í kvöld.
Guðjón Valur skoraði átta mörk úr níu skotum í kvöld. vísir/epa
Barcelona rústaði Puerto Sagunto, 44-29, í spænsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld.

Guðjón Valur Sigurðsson var markahæstur í liði Börsunga með átta mörk úr aðeins níu skotum. Víctor Tomás og Aitor Arino Bengoechea komu næstir með sex mörk hvor.

Allir útileikmenn Barcelona nema tveir komust á blað í kvöld en liðið var með frábæra skotnýtingu í leiknum, eða 73,3%.

Barcelona hefur unnið alla níu leiki sína og situr á toppi deildarinnar með 18 stig, einu stigi meira en Naturhouse La Rioja.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×