„Valdi vinur minn samdi lagið og leyfði mér að heyra. Ég féll strax fyrir því og samdi texta við lagið,“ segir María og bætir við: „Þetta er í rauninni fyrsti textinn sem ég skrifa sjálf, ég hjálpaði aðeins til við textann við Eurovision-lagið.“
Þrátt fyrir að hafa ekki áður reynt fyrir sér sem textahöfundur segir María textasmíðina hafa gengið fremur átakalaust fyrir sig. „Ég heyrði demó af laginu, hlustaði á það nokkrum sinnum og svo kom bara textinn á einu kvöldi,“ segir hún. „Ég held að flestir geti tengt við textann að einhverju leyti. Hann fjallar um það að líða illa en hafa verið á stað þar sem manni líður betur og vilja komast á hann aftur.“
María söng lagið Tek lítil skref, eða Unbroken líkt og það útleggst á ensku í Vín. Lagið vakti lukku hér á landi en komst ekki upp úr undankeppninni þar ytra.
María segir nýja lagið laust við Eurovision-fílinginn. „Ég myndi segja að þetta væri svolítið frábrugðið því sem ég hef verið að gera en það er samt alveg minn stíll,“ segir hún glöð í bragði og bætir við: „Ég vil ekki festast í Eurovision-Maríu.“ Og þegar hún er spurð að því hvort hún stefni á að taka þátt í Eurovision á næstunni er svarið stutt og laggott: „Allavega ekki í ár, en aldrei að segja aldrei.“
Hún segir stefnuna setta á að halda áfram að senda frá sér nýtt efni og undanfarið hafi hún verið að fá tilboð frá lagahöfundum. „Ég ætla að halda áfram. Það hefur líka verið áhugi að utan frá erlendum lagahöfundum sem eru búnir að vera að senda umboðsmanninum mínum demó. Þannig að ég er að skoða það og vonandi gerist eitthvað í því.“
Annars er nóg um að vera hjá söngkonunni þar sem líkt og hjá öðrum í hennar geira er að fara í hönd einn annasamasti tími ársins, sjálf jólatörnin og mun hún meðal annars að syngja á Jólagestum Björgvins Halldórssonar og á jólatónleikum Friðriks Ómars auk þess sem hún bregður sér reglulega í gervi Sollu Stirðu.
Og þrátt fyrir að hafa staðið á sviði fyrir framan margar milljónir þá viðurkennir hún að það sé ögn taugatrekkjandi að gefa út eigið efni í fyrsta sinn en lagið verður frumflutt í útvarpi á Bylgjunni í dag klukkan 14.00 en hlusta má einnig á lagið í spilaranum hér fyrir neðan neðan.
„Ég er mjög spennt en það er líka smá hnútur í maganum af því að þetta er fyrsta lagið, en maður verður náttúrulega að byrja einhvers staðar.“
Someday
Thoughts are running through my mind
Its so hard to leave some things behind
What if and what will happend if I
dont get this right
Trying hard to let things go
If I cry than my weakness starts to show
I cant keep on living like this anymore
You always say
Keep your head up
Life is waiting
Show the world
Who you really are
Some day
l´ll find the way
Gotta hold on
Gotta be strong
To get back on the road
Where I used to be before
before
Thoughts are running through my mind
About the day you came into my life
You picked me up and said that everything
will be fine
Never wanna let you go
This feeling is real, aint growing old
I will never be alone,
on my own
You always say
Keep your head up
Life is waiting
Show the world
Who you really are
Some day
I'll find the way
Gotta hold on
Gotta be strong
To get back on the road
Where I used to be before
before