Alfreð í vandræðum | Wiencek frá í hálft ár Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 5. október 2015 20:30 Wiencek er lykilmaður hjá Kiel, jafnt í vörn sem sókn. vísir/getty
Þýskalandsmeistarar Kiel urðu fyrir miklu áfalli um helgina þegar línumaðurinn sterki Patrick Wiencek sleit krossband í hægra hné. Þýski landsliðsmaðurinn meiddist í fjögurra marka sigri Kiel á Flensburg, 27-23, í A-riðli Meistaradeildar Evrópu á laugardaginn. Í dag kom svo í ljós að Wiencek er með slitið krossband og verður frá keppni næstu sex mánuðina. Hann verður því ekki með þýska landsliðinu á EM í Póllandi í janúar á næsta ári. Meiðsli Wiencek setja Alfreð Gíslason, þjálfara Kiel, í klemmu en hann verður aðeins með einn línumann í toppslagnum gegn Rhein-Neckar Löwen á miðvikudaginn. Hinn 21 árs gamli Rogerio Ferreiro, sem kom til Kiel í sumar, er með brasilíska landsliðinu á heríþróttaleikunum í Suður-Kóreu og snýr ekki aftur til Kiel fyrr en 11. október. Það mun því mikið mæða á Dananum René Toft Hansen gegn Löwen á miðvikudaginn.Sjá einnig: Alfreð sendir Jicha tóninn Kiel má ekki við að tapa stigum í þeim leik en Löwen er með fjögurra stiga forskot á lærisveina Alfreðs á toppi þýsku deildarinnar þegar átta umferðunum er lokið. Wiencek hefur skorað 26 mörk fyrir Kiel í þýsku deildinni á tímabilinu en hann kom til liðsins frá Gummerbach 2012.
Handbolti Mest lesið Sólveig keppti ólétt og á leið í þungunarrof Sport Marlena vann Bakgarðshlaupið: „Ég hljóp bara“ Sport Uppgjörið: Fjölnir - Afturelding 0-0 | Afturelding fer aftur á Laugardalsvöll Íslenski boltinn Fær sér ís í heita pottinum eftir tæplega 250 kílómetra hlaup Sport Haaland kastaði boltanum í hnakkann á Gabriel eftir jöfnunarmark City Fótbolti Ótrúleg og áður óséð tölfræði: Tveir Arsenal-menn áttu enga sendingu Enski boltinn Stig tekin af liði Ásdísar og félagið gæti hætt Fótbolti Keane segir Arteta að taka lyfin sín Enski boltinn BBC gefur í skyn að draumur Freys gæti ræst Enski boltinn Viðar Ari fjórbrotinn Fótbolti Fleiri fréttir Hörmulegur seinni hálfleikur varð þýsku meisturunum að falli Orri skoraði þrjú er Sporting valtaði yfir Íslendingaslaginn Fínn leikur Íslendinganna í Þýskalandi dugði ekki til Þjálfarinn í byrjunarliðinu: „Mér fannst þörf á smá aga í leikinn“ Sjö mörk Jóhönnu hjálpuðu til við að landa fyrsta sigrinum Uppgjörið: Fjölnir - HK 28-27 | Flautumarkið fékk ekki að standa og Fjölnir slapp með sigur Ihor fór mikinn í stórsigri Aftureldingar Fullkomin byrjun lærisveina Arnórs heldur áfram Ólafur með fjögur mörk í fyrsta sigri Karlskrona Aðeins einn löglegur dúkur svo Valur og FH byrja saman í Krikanum Arftaki Kristjáns óvænt hættur Guðmundur miður sín eftir stórtap: „Eitt það versta sem ég hef upplifað lengi“ Elín Klara og Sara Sif sáu um Stjörnuna Slæm byrjun Vals hélt áfram í Garðabænum „Höfðum mýmörg tækifæri til að klára þennan leik miklu fyrr“ „Fyrst og fremst bara ekki nógu sáttur með mína menn“ Gísli Þorgeir bar af í Íslendingaslag kvöldsins Haukar áfram á toppnum með fullt hús stiga Fram áfram með fullt hús Bjarki Már og Orri Freyr með stórsigra í Meistaradeildinni Uppgjörið: FH - ÍBV 33-30 | Góður kafli í fyrri hálfleik skilaði sigri FH-inga Framarar flæktir í óskýrum reglum HSÍ: „Þetta er alveg galið dæmi“ Haukur komið að nítján mörkum í fyrstu tveimur leikjunum í Meistaradeildinni Selfoss átti lítið í Íslandsmeistara Vals „Stefnum á að vera í þessum efri hluta“ Uppgjörið: ÍR - ÍBV 22-22 | Heimakonur komnar á blað Haukur magnaður í sigri á Viktor Gísla og félögum Alfa Brá og Katrín Anna í landsliðið Tímabilið byrjar vel hjá Bjarka sem varð markahæstur í stórsigri Gummersbach gaf mikið eftir í seinni hálfleik Sjá meira